Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.3.2026 | 13:32 Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, á fundinum. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Efnahagstillögur Sjálfstæðisflokksins voru kynntar á blaðamannafundi í Valhöll í dag. Tillögur flokksins eru í þremur köflum; auknar ráðstöfunartekjur heimilanna, efling íslensks atvinnulífs og hagræðing í ríkisrekstri. Tillögurnar, sem byggja á þeirri hugmyndafræði að einstaklingsframtakið sé undirstaða velferðar og framfara, fela meðal annars í sér skattalækkanir og hagræðingu í ríkisrekstri. Markmiðið er að stuðla að auknum hagvexti til lengri tíma, bæta lífskjör og skapa skilyrði fyrir minni verðbólgu og lægri vexti, samhliða því að lækka skuldir ríkissjóðs með sölu ríkiseigna. Eitt 35% skattþrep og persónuafsláttur hækkaður í 100.000 Með það að markmiði að auka ráðstöfunartekjur heimilanna leggur flokkurinn til einföldun skattkerfisins, sem hann vill meina að skapi hvata til vinnu. Þannig yrði aðeins eitt skattþrep, 35, og persónuafsláttur yrði hækkaður í 100.000 krónur. Með því að hækka persónuafslátt í 100.000 krónur á mánuði, sem jafngildi tæplega 38% hækkun, sé tryggt að tekjulægstu hóparnir njóti góðs af breytingunni og greiði minni tekjuskatt en áður. Þar að auki fela tillögurnar í sér að tekjur hjóna og sambúðarfólks verði skattlagðar saman að fullu, aðeins 18 ára og eldri greiði tekjuskatt, fjármagnstekjuskattur verði 20% á ný og frítekjumark hækki í 500.000 krónur á ári, afnám erfðafjárskatts, afnám vörugjalda á ökutæki, afnám kolefnisgjalds, afnám útvarpsgjalds, 5% lækkun krónutölugjalda, afnám stimpilgjalds, afnám virðisaukaskatts á barnavörur og skattaafslátt fyrir barnafjölskyldur. Efla samkeppnishæfni hagkerfisins Með það að markmiði að efla samkeppnishæfni hagkerfis Íslands vill flokkurinn tryggja stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi. Vill flokkurinn auðvelda stofnun, fjármögnun og uppbyggingu fyrirtækja. Þannig er lagt til að launaþróun taki mið af framleiðni og stöðu þeirra greina sem keppa á alþjóðlegum mörkuðum, launasetning taki mið af gjaldeyrisskapandi atvinnugreinum, ríkissáttasemjari fái auknar heimildir til að leysa ágreining og draga úr verkföllum og að hið opinbera sé ekki leiðandi í launaþróun. Flokkurinn vill efla íslenska nýsköpun með skattalegum hvata vegna rannsóknar og þróunar og hvata til fjárfestinga í nýsköpun. Hann vill auka þátttöku almennings á fjármálamarkaði með skattaafslætti vegna hlutabréfa og hlutdeildarskírteina og auka valfrelsi í viðbótarlífeyrissparnaði. Flokkurinn leggur einnig til einföldun á kostnaðarsömu regluverki með afnámi blýhúðunar alþjóðlegra reglna, einfaldara umsóknarferli um starfsleyfi eða heimild til uppbyggingar og einni rafrænni þjónustugátt. Hann vill gera eftirlit með atvinnustarfsemi skilvirkara, auka frelsi til veðmálastarfsemi, styrkja Ísland sem áfangastað og hækka veltumörk virðisaukaskatts. Fækka fasteignum ríkisins Flokkurinn leggur til hagræðingu í ríkisrekstri og vill meina að tækifæri til þess leynist víða. Hann vill afnema framlög til stjórnmálaflokka, afnema styrki til fjölmiðla, fækka opinberum stofnunum og samræma réttindi milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins. Þá er það trú flokksins að fyrirferð hins opinbera eigi að vera sem minnst í atvinnurekstri og að betur fari á því að einkaframtakið beri þar þungann. Tillögur flokksins miða að því að ríkið selji hlut sinn í hinum ýmsu félögum, ýmist að heild eða í hluta, og að söluandvirðið sé nýtt til að greiða niður skuldir ríkisins. Að lokum vill flokkurinn fækka fasteignum ríkisins, en samkvæmt ríkisreikningi 2024 nam bókfært verð fasteigna í eigu ríkisins um 440 milljarða króna, þar af var bókfært virði jarða 31 milljarður króna. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Handboltaheimurinn syrgir hetju Hamas fögnuðu ákvörðun Íslands og Hollands Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt Myndefni talið geta hjálpað við rannsókn á slysinu Gerði grín að eyðslu Liverpool Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ „Skynja rosalega mikla reiði“ Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Gistiheimili í húsi ríkislögreglustjóra Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Lögreglan lýsir eftir manni Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hélt að verið væri að hrekkja sig Maðurinn fundinn heill á húfi Gert að endurgreiða þrotabúi 10 milljónir Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Nýjast á mbl.is » Handboltaheimurinn syrgir hetju Hamas fögnuðu ákvörðun Íslands og Hollands Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt Myndefni talið geta hjálpað við rannsókn á slysinu Gerði grín að eyðslu Liverpool Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Vonast til að létta verulega á Landspítalanum Nærri 30.000 manns skrifað undir Rukka fyrir vanskráningu á morgun Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Lögreglan lýsir eftir manni Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hélt að verið væri að hrekkja sig Maðurinn fundinn heill á húfi Gert að endurgreiða þrotabúi 10 milljónir Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu

Share this article