Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðað til blaðamannafundar kl. 10 á morgun í Valhöll, þar sem kynntar verða efnahagstillögur Sjálfstæðisflokksins. „Meðal þess sem kemur fram er eitt skattþrep sem nemur 35 prósentum, hærri persónuafsláttur og að halda áfram með samsköttun hjóna sem ríkisstjórnin hefur afnumið,“ segir í tilkynningu flokksins. Á fundinum verður farið yfir hvaða skatta og gjöld Sjálfstæðisflokkurinn vill afnema og hvaða sköttum flokkurinn vill breyta en í heild nema tillögur flokksins 140 milljarða króna skattalækkun fyrir fjölskyldur landsins. Einnig verður kynnt á fundinum hvaða ríkisstofnanir Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að selja og hvar megi skera niður. Tillögur flokksins eru í þremur köflum: Auka ráðstöfunartekjur heimilanna Efla íslenskt atvinnulíf Ríkið geri minna, betur.