Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti á blaðamannafundi í dag efnahagstillögur flokksins sem fela m.a. í sér umfangsmiklar skattalækkanir fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Meðal tillagna sem snúa að heimilum er að taka upp eitt skattþrep sem nemur 35 prósentum, hækka persónuafslátt upp í 100 þúsund krónur og að halda áfram með samsköttun hjóna sem ríkisstjórnin hefur afnumið. Þá er lagt til að einungis 18 ára og eldri greiði tekjuskatt. Flokkurinn leggur til að fjármagnstekjuskattur verði lækkaður úr 22% í 20% og að frítekjumark verði hækkað úr 300 þúsund krónum í 500 þúsund krónur. Flokkurinn leggur til að nokkrir skattar og gjöld verði afnumin, þar á meðal erfðafjárskattur, útvarpsgjald, kolefnisgjald, vörugjöld á ökutæki, stimpilgjald og virðisaukaskattur af barnavörum. Einnig er lagt til 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað, en flokkurinn áætlar að sú ráðstöfun geti lækkað byggingarkostnað um 3-4 milljónir króna á íbúð. Samtals eru þessar aðgerðir sagðar fela í sér 140 milljarða króna skattalækkun fyrir fjölskyldurnar í landinu. Mynd tekin úr kynningu flokksins. Áætlað er að þessar aðgerðir myndu hafa í för með sér að einstaklingur með meðallaun, eða um 984 þúsund krónur á mánuði, muni þéna rúmlega 300 þúsund krónum aukalega á ári. Þá muni einstaklingur með lágmarkslaun, eða um 476 þúsund krónur, þéna tæplega 160 þúsund krónum aukalega á ári. Einnig er tekið dæmi um hjón þar sem annar einstaklingurinn er með 550 þúsund krónur í mánaðarlaun og hinn 1,1 milljón króna. Í því tilviki myndu laun hjónanna hækka um tæplega hálfa milljón króna á ári. Leggja til sölu Landsbankans og meirihluta í Isavia og Landsneti Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að seldir verði eignarhlutir í níu ríkisfyrirtækjum ásamt því að seldur verði hluti af fasteignum í eigu ríkisins. Samtals á þessi eignasala að skila yfir 680 milljörðum króna sem verja á í niðurgreiðslu ríkisskulda. Áætlað er að það leiði til þess að vaxtakostnaður ríkisins lækki um meira en 45 milljarða króna. Flokkurinn vill sem fyrr segir afnema útvarpsgjald og að Ríkisútvarpið verði sett á fjárlög. Auk þess er talað fyrir sameiningu stofnana, þar á meðal Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu. Auka skattaafslátt almennings vegna hlutabréfakaupa Sjálfstæðisflokkurinn talar fyrir því að heimila tekjuskattsfrádrátt við kaup á hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum. Tekjuskattsfrádrátturinn myndi samsvara 100% af verðmæti keyptra hlutabréfa á ári umfram verðmæti seldra bréfa, þó að hámarki 550 þúsund króna hjá einstaklingi og 1,1 milljón hjá hjónum. „Sterkur hlutabréfamarkaður þar sem fyrirtæki hafa greiðan aðgang að fjármagni sem nýta má til fjárfestingar og vaxtar er þjóð allri til hagsbóta. Fjöldi þátttakenda á hlutabréfamarkaði eykur dýpt markaðarins, getur liðkað fyrir seljanleika og dregið úr flökti ásamt því að tvinna betur saman hagsmuni einstaklinga og atvinnulífs.“ Hvað frekari aðgerðir í þágu atvinnulífsins varðar vill flokkurinn lögfesta skattalega hvata vegna rannsóknar og þróunar til lengri tíma, ásamt því að auka hvata til fjárfestinga í nýsköpunarfélögum. Þá vill flokkurinn jafna kjör á opinbera og almenna vinnumarkaðnum og tryggja samræmda kjarasamningagerð af ríkissáttasemjara. Talað er fyrir því að einfalda einyrkjum og litlum fyrirtækjum starfsemi með því að hækka veltumörk virðisaukaskatts úr 2 milljónum króna í 15 milljónir króna og úr 4 milljónum króna í 100 milljónir króna. Til að efla samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannastaðar vill flokkurinn lækka krónutölugjöld um 5% samhliða sérstakri 5% lækkun áfengisgjalda til viðbótar. Slíkt eigi að efla rekstrargrundvöll veitingastaða og gististaða um allt land.