Innlent | mbl | 10.2.2026 | 17:38 „Skattar eru of háir á barnafjölskyldur“ Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson/Birta Margrét „Verðbólgan og vaxtastigið eru löngu farin að bíta illilega og þessi aukna skattheimta í boði ríkisstjórnarinnar kemur því illa við heimilin í landinu.“ Svona hóf málshefjandinn Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mál sitt í sérstakri umræðu um stöðu barnafjölskyldna á þingfundi í dag. Hún sagði forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafa lofað landsmönnum því fyrir síðustu kosningar að ná tökum á verðbólgu og vöxtum og ekki að hækka skatta á venjulegt fólk. Nú sé vel liðið á annað ár ríkisstjórnarinnar og landsmenn sitji fastir í hárri verðbólgu og vöxtum og blikur séu á lofti varðandi atvinnuleysi. Ríkisstjórnin hefði þegar samþykkt miklar skattahækkanir á almenning í landinu: vörugjöld á ökutæki, afnám sérstakrar heimildar hjóna og sambúðarfólks til samsköttunar, hækkun skatta á leigutekjur, krónutöluhækkanir langt umfram verðbólgumarkmið og kílómetragjaldið. „Þarna eru fáir, ef nokkrir, landsmenn undanskildir og við sjálfstæðismenn mótmæltum þessum skattahækkunum harðlega og kusum gegn þeim í þingsal. Tillögur okkar sjálfstæðismanna hafa þvert á móti verið hagræðing í ríkisrekstri, sala eigna, skattalækkanir og niðurgreiðsla ríkisskulda,“ sagði Diljá. Frétt af mbl.is Afnám samsköttunar sé skattahækkun í dulargervi Lýsti miklum áhyggjum af stöðu barnafólks Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra var til andsvara og sagðist Diljá vilja heyra hvort hann teldi ákvarðanir ríkisstjórnarinnar um breytingar á sköttum og gjöldum hafa verið teknar sérstaklega með hliðsjón af stöðu barnafjölskyldna. Þá minnti hún á að stjórnvöld hefðu gefið út leiðarvísi um hagsmunamat út frá réttindum barna í allri stefnumótun stjórnvalda. Markmiðið væri að huga markvisst að áhrifum ákvarðana stjórnvalda á börn, en hagsmunamatið væri hluti af innleiðingu barnasáttmálans samkvæmt ályktun sem samþykkt hefði verið á Alþingi. Þá spurði hún hvort ráðherra gæti staðfest að slíkt hagsmunamat hefði farið fram. Þá lýsti hún miklum áhyggjum af stöðu barnafólks í þessu árferði og spurði hvort ráðherrann ætlaði að stuðla sérstaklega að velferð fjölskyldunnar í sínum störfum. „Svarið er afdráttarlaust já“ „Málshefjandi spyr hvort stuðla eigi sérstaklega að velferð fjölskyldunnar. Svarið er afdráttarlaust já,“ sagði Ragnar í andsvari sínu. Ríkisstjórnin hefði þegar gripið til ýmissa aðgerða til að stuðla að velferð fjölskyldna. Lenging fæðingarorlofs fjölbura foreldra og aukin réttindi foreldra sem veikjast á meðgöngu væru raunverulegar úrbætur sem mættu þörfum fjölskyldna þegar mest á reynir. Þá hefði einnig verið tryggt að allar breytingar á fæðingarorlofskerfinu næðu til allra foreldra í fæðingarorlofi, breyting sem hefði þegar verið til góðs hjá þeim sem voru í fæðingarorlofi þegar hækkun á hámarki greiðslna tók gildi um áramótin. Stærsta kjaramál samtímans, sérstaklega fyrir barnafjölskyldur, væri þó húsnæðiskostnaður og það áhrifamesta sem stjórnvöld gætu gert í þeim málaflokki væri að ná niður vöxtum og verðbólgu. Til þess verði að sýna ábyrgð og aðhald í ríkisfjármálum og stuðla að auknu framboði íbúða. Einnig þurfi að huga að félagslegri blöndun og tryggja úrræði fyrir bæði efnaminni og fyrstu kaupendur. Flokkur fólksins hefði lagt áherslu á að hefja skuli uppbyggingu nýrra hverfa, m.a. með uppbyggingu í Úlfarsárdal. Þá hafi þingið nýlega samþykkt frumvarp um endurskoðun hlutdeildarlána kerfisins. Meðal breytinga hefðu verið hækkun á lánshlutfalli og tekjuviðmiðum og frumvarpið sé strax farið að bera ávöxt. Þá standi til að hann leggi fram sitt fyrsta frumvarp sem ráðherra og það muni auka hlutfall stofnframlaga fyrir uppbyggingu almennra íbúða. Það getur skipt barnafjölskyldur sköpum að komast af almennum leigumarkaði og í íbúð hjá óhagnaðardrifnu leigufélagi. „Ég ætla ekki að festast í svörum hv. ráðherra“ Diljá sagðist sammála ráðherra um mikilvægi þess að ná niður vöxtum og verðbólgu en þar hefði ríkisstjórninni ekki tekist nógu vel. „Ég ætla ekki að festast í svörum hæstvirts ráðherra og nýta heldur tímann í að fara yfir tillögur okkar sjálfstæðismanna til að bæta stöðu barnafólks,“ sagði hún. Hún hefði þegar lagt fram frumvarp um stighækkandi skattafrádrátt fyrir forráðamenn barna innan 16 ára aldurs. Þingmaðurinn Vilhjálmur Árnason hefði lagt fram frumvarp um skattafrádrátt vegna heimilisaðstoðar, m.a. vegna umönnunar barna, og frumvarp um afnám stimpilgjalds vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði. Þá hefði varaþingmaðurinn Tryggvi Másson lagt fram frumvarp um rýmkun á ráðstöfunarrétti séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán. Að lokinni umræðu myndi hún síðan leggja fram tvö ný þingmál í nafni þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Annars vegar frumvarp um skattafrádrátt forráðamanna vegna tómstunda barna og hins vegar frumvarp um að fella niður virðisaukaskatt á allar barnavörur, eins og bleyjur, barnavagna, barnabílstóla og barnaföt. „Skattar eru of háir á barnafjölskyldur og með þessum aðgerðum tryggjum við stuðning við þær með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti,“ sagði hún að lokum. „Held að við séum á ágætis leið“ Í seinna andsvari sínu sagðist Ragnar Þór ekki geta séð hvernig sala ríkiseigna eins og Landsbankans, Landsvirkjunar og Isavia, eða að leggja niður Neytendastofu og minnka álögur á fyrirtæki, hjálpi barnafjölskyldum sérstaklega. „Ég held að það fari betur á því að stefna ríkisstjórnarinnar, að ná jafnvægi til lengri tíma í ríkisrekstri, hallalaus fjárlög, uppgjör ÍL-sjóðs sem var klárað og fleiri mikilvæg mál sem hafa gert það að verkum að lánshæfismat ríkisins var hækkað í gær, sem mun síðan hafa væntanlega þau áhrif að fjármagnskostnaður ríkisins mun vonandi lækka í kjölfarið. Þannig að ég held að við séum á ágætis leið. En auðvitað má alltaf gera betur og ég kem vel nestaður úr þessari umræðu og þakka fyrir hana.“ Tómas hetjan hjá toppliðinu West Ham - Man. Utd, staðan er 1:0 Klúður tímabilsins á Brúnni – Tottenham í miklu veseni Frábær endurkoma Tindastóls Elliði fór á kostum í stórleik Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna að ESB Hefur fjármagnað innrásina í Úkraínu Fleira áhugavert Tollar Trumps skaða franskan vínútflutning Kastaði farsíma í lögreglubíl Hjólað í verðtryggingu um áramót Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fólksbíll lenti aftan á gröfu Reynisfjara tekur stakkaskiptum Margrét segir af sér sem rektor Myndir: Sjáðu gjörbreytta Reynisfjöru Deila tilkynningu írsku lögreglunnar Goddur jarðsunginn í dag #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Látinn eftir slys á Miklubraut „Búið að eyðileggja líf þriggja hjúkrunarfræðinga“ Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Kjartan úr lífshættu en mikið slasaður Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Starfsfólk bráðamóttökunnar smitað af berklum Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Tómas hetjan hjá toppliðinu West Ham - Man. Utd, staðan er 1:0 Klúður tímabilsins á Brúnni – Tottenham í miklu veseni Frábær endurkoma Tindastóls Elliði fór á kostum í stórleik Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna að ESB Hefur fjármagnað innrásina í Úkraínu Fleira áhugavert Ljósastýrt hringtorg í Firðinum „Skattar eru of háir á barnafjölskyldur“ Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Skjálftahrinan virðist hafa fjarað út Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fólksbíll lenti aftan á gröfu Reynisfjara tekur stakkaskiptum Margrét segir af sér sem rektor Myndir: Sjáðu gjörbreytta Reynisfjöru Deila tilkynningu írsku lögreglunnar Goddur jarðsunginn í dag #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Látinn eftir slys á Miklubraut „Búið að eyðileggja líf þriggja hjúkrunarfræðinga“ Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Kjartan úr lífshættu en mikið slasaður Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Starfsfólk bráðamóttökunnar smitað af berklum Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi