Nýjustu áform ríkisstjórnarinnar um að draga úr endurgreiddum virðisaukaskatti af vinnu á verkstað vegna nýbygginga, endurbóta og viðhalds, skattahækkun á fjármálafyrirtæki og hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna, eru skýrt dæmi um rauða þráðinn í hagstjórninni þeirra: hærri skattar og skortur á skilningi á rekstrarumhverfi fyrirtækja í landinu. Skattar virðast ítrekað vera hækkaðir „af því bara“. Kannski er það vegna þess að ég man vel eftir því hvernig ríkisstjórnin bar sig vorið 2025 þegar hún ætlaði að þvinga öll sveitarfélög landsins í hámarksútsvar með því að refsa öllum sem væru undir hámarkinu. Á lokametrunum var bakkað með þessa furðulegu breytingu. Þá var enda öllum orðið ljóst að um var að ræða hreinræktaða skattahækkun, þvert á vilja sveitarfélaganna sem hefðu notið ávinningsins af hærri útsvarstekjum frá íbúum sínum. Nýjustu skattar ríkisstjórnarinnar sem boðaðir eru í fjármálaáætlun áranna 2027-2031 virðast sama marki brenndir. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift