Innlent | Morgunblaðið | 30.3.2026 | 6:00 Almenningur borgar skattahækkanir Hækkanir auka verðbólguþrýsting og hækka húsnæðisverðið. mbl.is/Golli Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 Skattahækkanir í fjármálaáætlun Ákvörðunin í höndum ríkisstofnana Mun á endanum lenda á almenningi „Við vitum öll hvernig fyrri blekkingar enduðu“ „Kemur gríðarlega á óvart“ » Fleiri tengdar fréttir „Það er alltaf farin sama leiðin af hálfu þessarar ríkisstjórnar til að loka fjárlagagatinu, sem er sú að hækka skatta. Í stað þess að gæta aðhalds og sparnaðar vilja ríkisstjórnarflokkarnir hækka skatta og kemur það fyrst og síðast við allan almenning,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið. Frétt af mbl.is Skattahækkanir í fjármálaáætlun Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar 2027-2031, sem kynnt var í sl. viku, kemur m.a. fram að tekjuáhrif af ólögfestum skattabreytingum muni nema 23-57 milljörðum króna á fyrrgreindu árabili. Segir þar að veigamesta breytingin á tímabilinu taki til gjaldtöku á ökutæki og eldsneyti og sé hún framhald aðgerða síðustu ára sem miði að því að tekjur af ökutækjum og eldsneyti verði 1,7% af vergri landsframleiðslu, til samræmis við meðaltal áranna 2010-2017. Þrátt fyrir minni ólögfestar ráðstafanir til tekjuöflunar geri tekjuáætlun nú ráð fyrir hærri tekjum en í síðustu fjármálaáætlun, bæði í krónum talið og sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu. Frétt af mbl.is Mun á endanum lenda á almenningi „Þarna vantar inn stórauknar gjaldahækkanir vegna vegasamgangna sem bætast ofan á kílómetragjald og hækkun vörugjalda á ökutæki og hækkun veiðigjalda sem áttu að skila sér til vegagerðar. Í fjármálaáætluninni er reyndar gert ráð fyrir lækkun framlaga til vegamála, þrátt fyrir allar þessar skattahækkanir,“ segir Guðlaugur Þór og bendir einnig á áformaða viðbótargjaldtöku af umferð á höfuðborgarsvæðinu vegna samgöngusáttmálans upp á 143 milljarða. „Það að hækka skatta á húsbyggingar eins og ríkisstjórnin ætlar að gera hækkar byggingarkostnað, eykur verðbólguþrýsting og húsnæðisverð. Almenningur borgar það,“ segir hann. Frétt af mbl.is „Við vitum öll hvernig fyrri blekkingar enduðu“ Áformaða gjaldtöku á ferðamannastöðum segir hann þýða að allir sem þá sæki muni þurfa að greiða gjaldið, ekki bara erlendir ferðamenn. Auknir skattar á ferðaþjónustuna muni skaða samkeppnishæfni hennar sem koma muni niður á almenningi. Það sé viðbótarskattheimta ofan á þá sem fyrir er. „Bankaskattur hljómar kannski vel í eyrum einhverra, en það liggur fyrir að sá skattur verður að líkindum greiddur af almenningi að stærstu leyti í formi hærri vaxta. Síðan stendur til að hækka skatta á einyrkja og það mun leiða til þess að þeir þurfa að selja sína vinnu á hærra verði og það mun koma niður á almenningi,“ segir Guðlaugur Þór. Tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 Skattahækkanir í fjármálaáætlun Ákvörðunin í höndum ríkisstofnana Mun á endanum lenda á almenningi „Við vitum öll hvernig fyrri blekkingar enduðu“ „Kemur gríðarlega á óvart“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Flóttamaður skotinn til bana eftir sjö mánaða leit BAFTA-verðlaunahafi í Hofi Víða skúrir eða él Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Almenningur borgar skattahækkanir Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fljúgandi skíði á þjóðveginum Rannsaka netárásir á vefsíður ESB Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Fá ekki leyfi til að rífa braggann Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn „Það harma náttúrulega allir þessa stöðu“ Borgin greiddi um 14 milljónir fyrir veislur Afleit staða til að eiga við faraldur Allrólegu veðurfari spáð í dymbilvikunni Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Versluninni Ríteil Kids lokað Flugi til Parísar aflýst Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Flóttamaður skotinn til bana eftir sjö mánaða leit BAFTA-verðlaunahafi í Hofi Víða skúrir eða él Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Almenningur borgar skattahækkanir Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Aldrei bar skugga á okkar vináttu Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Afleit staða til að eiga við faraldur Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn „Það harma náttúrulega allir þessa stöðu“ Borgin greiddi um 14 milljónir fyrir veislur Afleit staða til að eiga við faraldur Allrólegu veðurfari spáð í dymbilvikunni Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Reynisfjara hættulegri en ferðamenn jafnfífldjarfir Versluninni Ríteil Kids lokað Flugi til Parísar aflýst Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri