Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Skattahækkanir í fjármálaáætlun

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 28.3.2026 | 14:32 Skattahækkanir í fjármálaáætlun Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra kynnir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. mbl.is/Eyþór Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Skatturinn gæti leitt til hærri vaxta Óánægja með bankaskatt Mun á endanum lenda á almenningi „Kemur gríðarlega á óvart“ Vond tíðindi en toppnum vonandi náð » Fleiri tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 Ákvörðunin í höndum ríkisstofnana Mun á endanum lenda á almenningi „Við vitum öll hvernig fyrri blekkingar enduðu“ „Kemur gríðarlega á óvart“ „Óábyrgt að vera að boða svona breytingar“ » Fleiri tengdar fréttir „Hún veldur vonbrigðum. Við þurfum að hafa það í huga að fjárlög ársins 2025 hefðu verið í jafnvægi, hefði ekki komið til þess að sett voru fjáraukalög af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það olli okkur vonbrigðum að fjárlögin 2026 voru með halla, allar tillögur okkar sjálfstæðismanna við fjárlagagerðina voru felldar, bæði þær sem sneru að hagræðingu og einnig að skatta- og gjaldalækkunum. Tillögur okkar gerðu ráð fyrir því að vera með hallalaus fjárlög á þessu ári,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd Alþingis, í samtali við Morgunblaðið. Leitað var viðbragða hans við fjármálaáætlun áranna 2027-2031 en fjármálaráðherra kynnti þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar þar um á Alþingi á fimmtudag. Kom þar m.a. fram að fjárlög næsta árs yrðu með 1,1 milljarðs króna afgangi. Aðhaldið á tekjuhliðinni „Þótt það sé jákvætt að sjá að ríkisstjórnin ætli að ná hallalausum fjárlögum árið 2027 þá er afgangurinn ekki nema 1,1 milljarður króna sem er örlítið brot, eða 0,02%, af útgjöldunum. Það sér það hver maður að það er í besta falli næfurþunnt. Í ofanálag segir í fjármálaáætluninni að aðhaldið sé aðallega á tekjuhliðinni. Það þýðir skattahækkanir á mannamáli, en gert er ráð fyrir að skattahækkanirnar geti numið allt að 57 milljörðum. Þessar skattahækkanir fela það m.a. í sér að byggingarkostnaður mun hækka,“ segir Guðlaugur Þór. Hann nefnir einnig að ætlunin sé að taka upp einhvers konar náttúrupassa sem áður hafði verið hætt við, en notendagjöld tekin upp í staðinn. Ríkisstjórnin ætli nú til viðbótar að koma með sérstaka skattahækkun á ferðaþjónustuna sem koma muni við allan almenning. „Það á líka að hækka skatta á litla og meðalstóra atvinnurekendur og það mun ekki þurfa að fara í gegnum þingið því ætlunin er að breyta reglugerð þar að lútandi. Síðan er gert ráð fyrir stórauknum tekjum af umferð, eins og Morgunblaðið hefur fjallað um, en þegar fjármálaáætlunin er skoðuð sést að gert er ráð fyrir að útgjöld til samgöngumála muni lækka. Gjaldahækkun á umferð og ökutæki, kílómetragjald, vörugjöld og meira að segja veiðigjöld sem áttu að skila 7,6 milljörðum og fara áttu til uppbyggingar samgöngumannvirkja munu ekki skila sér til þeirra verkefna þar sem framlögin munu dragast saman. Það er verið að hækka skatta og sagt að það sé til þess að verja auknu fé í samgöngumál en samt er verið að lækka framlögin til málaflokksins,“ segir Guðlaugur Þór. Hvaða einkunn gefur þú þessari fjármálaáætlun? „Ég gef henni 3 fyrir viðleitni,“ segir hann. „Þetta er í raun ekki neitt“ „Fjármálaáætlunin er miklu veikari en ég bjóst við,“ segir Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að ríkisstjórnin hampi því sérstaklega að ætlunin sé að ná hallalausum fjárlögum 2027 en aðeins sé gert ráð fyrir 1,1 milljarðs afgangi þegar gert sé ráð fyrir 1.600 milljarða króna ríkisútgjöldum. „Það er í raun ekki neitt. Hagtölurnar þurfa ekki að hreyfast nema brotabrot úr prósenti til þess að áformin gangi ekki eftir. Það er ekkert í hendi í þessu og ég hef áhyggjur af því. Hagspár Seðlabankans hafa verið að hreyfast mikið síðustu misseri og til hins verra og þurfa ekki að breytast nema örlítið, þá er þetta allt farið,“ segir hann og telur fjármálaáætlunina byggða á mjög veikum grunni. Innantóm loforð „Ég hef áhyggjur af framhaldsskólastiginu en framlög til þess munu lækka verulega á tímabilinu. Löggæslan mun einnig lækka og það er ekki að sjá neina aukningu til samgöngumála, þau lækka frekar en hitt, þrátt fyrir stóraukningu í gjaldtöku af umferð og ökutækjum,“ segir Stefán Vagn og segir að loforð ríkisstjórnarinnar um átak í samgöngumálum séu innantóm. Ýtir undir hærri vexti „Mér líst ekki vel á fjármálaáætlunina. Lausatök í ríkisfjármálum eru alltaf til þess fallin að ýta undir verðbólguvæntingar og hærri vexti,“ segir Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd. Hann segist ekki gefa mikið fyrir þann 1,1 milljarðs afgang sem gert sé ráð fyrir á næsta ári. „Það er eins og sandkorn á sjávarströnd,“ segir hann. „Það er ekki verið að taka á útgjaldahliðinni og þótt gert sé ráð fyrir fækkun opinberra starfsmanna þá á það að gerast á næsta ári en ekki þessu. Þarna vantar alveg kostnaðinn sem falla mun til vegna aðildarviðræðna við Evrópusambandið, komi til þeirra, og margt annað líka. Ég hefði viljað sjá miklu harðari aðgerðir. Þarna sést heldur ekkert til hagræðingartillagna sem fram komu fyrir ári,“ segir Karl Gauti. Fjármálaáætlun áranna 2027-2031 kynnt Er sögð marka tímamót. Stöðva á hallarekstur ríkissjóðs árið 2027. Áætlaður afgangur 1,1 milljarður – 0,02% af útgjöldum. Aukinn rekstrarafgangur eftir því sem á líður. Afgangurinn á að vera 34 milljarðar í lok tímabilsins. Skuldahlutfall ríkissjóðs á að fara lækkandi. Skatta- og gjaldahækkanir boðaðar í áætluninni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Skatturinn gæti leitt til hærri vaxta Óánægja með bankaskatt Mun á endanum lenda á almenningi „Kemur gríðarlega á óvart“ Vond tíðindi en toppnum vonandi náð » Fleiri tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 Ákvörðunin í höndum ríkisstofnana Mun á endanum lenda á almenningi „Við vitum öll hvernig fyrri blekkingar enduðu“ „Kemur gríðarlega á óvart“ „Óábyrgt að vera að boða svona breytingar“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » ÍR - Fram, staðan er 20:20 Skattahækkanir í fjármálaáætlun Maður varð fyrir bíl í Þrengslum Í leit að góðri páskaköku? Við erum með svarið Einar Bragi í úrslitaleikinn Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Komu rútu til aðstoðar í blindhríð Lúxussnekkjunni hleypt í land af öryggisástæðum Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Engin blóðtengsl við fjölskyldu­sameiningu Samgöngutruflanir eru líklegar Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Það er spurning hvar maður lendir Er hættulegt að vera í rafmagnsbíl í eldingaveðri? Líkamsárás í verslunarmiðstöð Hætta hringsóli á bílastæðum Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Nýjast á mbl.is » ÍR - Fram, staðan er 20:20 Skattahækkanir í fjármálaáætlun Maður varð fyrir bíl í Þrengslum Í leit að góðri páskaköku? Við erum með svarið Einar Bragi í úrslitaleikinn Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Það er spurning hvar maður lendir Segir óvíst hvort Bandaríkin myndu aðstoða NATO Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Komu rútu til aðstoðar í blindhríð Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Engin blóðtengsl við fjölskyldu­sameiningu Samgöngutruflanir eru líklegar Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Það er spurning hvar maður lendir Er hættulegt að vera í rafmagnsbíl í eldingaveðri? Líkamsárás í verslunarmiðstöð Hætta hringsóli á bílastæðum Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Telur græðgi h

Share this article