Í nýrri fjármálaáætlun er boðuð aukin skattheimta á fjármálafyrirtæki. Ekki er tilgreint sérstaklega hvaða skatt sé horft til í þeim efnum en þrír sérstakir skattar eru lagðir á fjármálafyrirtæki hérlendis. „Ein af margþættum aðgerðum til þess að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs felst í því að afla viðbótarskatttekna frá fyrirtækjum í fjármálageiranum en fyrirtæki í þeim geira greiða sérstaka skatta sem lagðir eru á skuldir, laun og hagnað,“ segir í fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031. Hinn svonefndi bankaskattur er sérstakur skattur er lagður á fjármálafyrirtæki sem nemur 0,145% af heildarskuldum viðkomandi lögaðila yfir 50 milljörðum króna í lok hvers árs. Fjögur fjármálafyrirtæki fá þennan skatt álagðan og greiddu samtals 6,7 milljarða króna vegna rekstrarársins 2024. Sjá einnig Hækkun bankaskatts leiði til lakari vaxtakjara Bankaskatturinn var fyrst lagður á árið 2010. Skatthlutfallið var upphaflega 0,041% en var ríflega nífaldaður upp í 0,376% árið 2013 til að standa straum af kostnaði við Leiðréttinguna. Hlutfallið stóð óbreytt í 0,376% fram til ársins 2021 þegar það var lækkað í 0,145%. Auk bankaskattsins eru tveir aðrir sérstakir skattar lagðir á fjármálafyrirtæki hérlendis sem ekki eru lagðir á önnur fyrirtæki. Samtals skiluðu þessir þrír sérstöku skattar um 17,7 milljörðum króna í fyrra. Sérstakur 6% skattur leggst á hagnað fjármálafyrirtækja, þ.m.t. tryggingafélaga, sem er umfram einum milljarði króna. Þessi skattur skilaði ríkinu 7,1 milljarði króna frá 16 lögaðilum í fyrra. Þá er 5,5% viðbótarskattur lagður á allar tegundir launa eða þóknana hjá fjármála- og tryggingafyrirtækjum, þar með talið bónusgreiðslur ef einhverjar eru. Álagning þessa fjársýsluskatts nam 3,9 milljörðum króna í fyrra. Gjaldendur voru 109 talsins. Fjármálafyrirtæki greiða einnig árlega eftirlitsgjöld vegna starfsemi Fjármálaeftirlitsins og nam sú upphæð 3,1 milljarði króna á síðasta ári. Þessu til viðbótar standa fjármálafyrirtækin straum af kostnaði við rekstur umboðsmanns skuldara, sem nemur um 300 milljónum króna til viðbótar. Samtals námu ofangreindar greiðslur 21,1 milljarði króna í fyrra. Samkvæmt úttekt sem Intellecon vann fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) haustið 2024 er skattheimta á banka umtalsvert hærri hér á landi heldur en í samanburðarríkjum. Sjá einnig Íslandsálag á útlánum allt að eitt prósent Þar kom fram að skattheimta sem hlutfall af áhættuvegnum eignum sé um 1,18% á Íslandi, en að meðaltali 0,46% á hinum Norðurlöndunum og 0,39% sé litið til allra Evrópulandanna. Skattlagning íslenskra banka á þennan mælikvarða var því tvö- til þreföld á við það sem viðgengst almennt í Evrópu.