Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Það verður ekki hjá því komist að herða ólina sums staðar“

Read Full Article →

Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verður kynnt á fimmtudag og lögð fram á Alþingi eftir mánaðamót. Stjórnvöld hafa gefið það út að stefnt sé að hallalausum fjárlögum og fjármálaráðherra segir það skýra stefnu ríkisstjórnarinnar að sýna aðhald. „Það er skýr stefna þessarar ríkisstjórnar að standa vörð um ákveðin grundvallarkerfi, heilbrigðiskerfið okkar, lögregluna, öryggismál heimilanna, menntakerfið, en það verður ekki hjá því komist að herða ólina sums staðar,“ Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. „Þetta leggst svolítið flatt á, hjá því verður heldur ekki komist, þú nærð í sjálfu sér engum árangri öðruvísi,“ segir Daði Már spurður í hvaða málflokkum ólin verði hert. „Og það er mjög mikilvægt að hafa í huga að það eru auðvitað mjög mörg önnur kerfi sem eru mjög mikilvæg. En það sem þessi ríkisstjórn er að gera er að setja efnahagsmálin í forgang, að tryggja það að ríkið sé ekki að ýta undir eftirspurn með því að skila hallalausum fjárlögum.“ Aðspurður hvort einhverjar gjalda- eða skattahækkanir sé að finna í fjármálaáætluninni segir Daði Már að alltaf séu einhverjar breytingar í tengslum við fjármálaáætlanir en ekkert óvænt í þeim efnum verði þar að finna. Ólin verður hert í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem kynnt verður á fimmtudag. Fjármálaráðherra segir niðurskurðinn flatan, en vörður verði staðinn um grundvallarkerfi eins og heilbigðis- og menntakerfið.

Share this article