Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 15.4.2026 | 7:00 Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Guðlaugur Þór Þórðarson mbl.is/Karítas Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Ríkisstjórnin kynnir fjármálaáætlun næstu ára undir einföldum slagorðum um hallalaus fjárlög og ábyrga stjórn ríkisfjármála. Það hljómar vel. En þegar álitsgerð fjármálaráðs er lesin blasir allt önnur mynd við. Þar kemur fram að undir yfirborðinu séu verulegir veikleikar: sjálfvirkur útgjaldavöxtur hefur verið aukinn, framkvæmd stöðugleikareglu er ógagnsæ og skuldir eru áfram á leið upp þrátt fyrir fögur orð um aga og festu. Það er vissulega jákvætt að stefnt sé að hallalausum fjárlögum árið 2027. Fjármálaráð fangar því. En ráðið bætir jafnframt við að afkomubatinn sé ekki nægilega öflugur, reyndar næfurþunnur, ekki nægilega trúverðugur og ekki nægilega varfærinn í ljósi skuldastöðu hins opinbera og þeirrar óvissu sem nú ríkir. Það er þungur dómur yfir áætlun sem á að skapa traust. Stærsta mótsögnin í áætluninni er þó önnur. Á sama tíma og stjórnvöld tala um aðhald og aga hafa þau lögfest víðtæka og sjálfvirka vísitölutengingu almannatrygginga. Fjármálaráð segir að þessi breyting feli í sér mikla hættu á að misræmi myndist milli útgjalda og tekjuöflunargetu hins opinbera og að hún geti haft víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar fyrir sjálfbærni opinberra fjármála. Með öðrum orðum: stjórnvöld segjast ætla að herða taumhaldið en hafa um leið bundið stóran hluta útgjalda í sjálfvirkan vöxt. Og það sem gerir þetta enn alvarlegra er að fjármálaráð telur að rökin fyrir þessari breytingu standist ekki. Stjórnvöld hafa vísað til svokallaðrar kjaragliðnunar milli bótaþega og launafólks. En ráðið bendir á að gögn sýni ekki slíka almenna kjaragliðnun. Þvert á móti hafi ráðstöfunartekjur eldri borgara færst nær tekjum fólks á vinnualdri og ráðstöfunartekjur öryrkja ekki dregist aftur úr tekjum vinnandi fólks. Þegar stjórnvöld ráðast í svo stóra og kostnaðarsama breytingu án þess að grunnforsendan sé studd af gögnum, þá veikist ekki aðeins fjármálaleg staða ríkisins heldur líka trúverðugleiki stefnunnar. Fjármálaáætlun ýtir undir verðbólguvæntingar Málið snýst ekki bara um kostnað heldur líka um verðbólgu og vinnumarkað. Fjármálaráð varar við því að þessi nýja tenging bóta við laun og verðlag geti aukið eftirspurn, ýtt undir verðbólguseiglu og raskað hvötum á vinnumarkaði. Það er sérstaklega athyglisvert á tímum þegar verðbólguvæntingar eru enn háar og stjórnvöld ættu að leggja sitt af mörkum til að draga úr þrýstingi í hagkerfinu, ekki auka hann. Sömuleiðis fær stöðugleikaregla ríkisfjármála þunga gagnrýni. Fjármálaráð segir að framkvæmd hennar sé ógagnsæ og óljóst hvernig hún eigi að tryggja jafnvægi í afkomu. Ástæðan er sú að stjórnvöld meta sjálf kostnaðarþróun eigin útgjalda og nota það mat til að staðvirða útgjöldin. Þannig verður reglan ekki einföld og skýr heldur tæknilegt reikningsatriði sem almenningur, Alþingi og aðrir eftirlitsaðilar eiga erfitt með að sannreyna. Það er hættulegt þegar reglur sem eiga að skapa traust verða þannig að áliti fjármálaráðs sjálfs tortryggilegar í framkvæmd. Skuldasöfnun heldur áfram En stærsti áfellisdómurinn snýr líklega að skuldunum. Fjármálaráð bendir á að lánsfjárjöfnuður verði neikvæður allt tímabilið til 2031. Það þýðir einfaldlega að lántökur verða áfram meiri en afborganir. Skuldir halda því áfram að hækka í krónum talið þótt skuldahlutfall geti lækkað á pappír vegna hagvaxtar. Ráðið varar sérstaklega við því að treysta á slíka hagfellda þróun. Það er engin varfærin fjármálastjórn að byggja skuldalækkun fyrst og fremst á von um hagvöxt. Fjármálaráð bendir jafnframt á freistnivandann sem felst í endurlánum og áformum um fjármögnun innviða utan A1-hluta ríkissjóðs. Þar er hættan sú að hægt sé að auka skuldbindingar ríkisins án þess að það sjáist jafn skýrt í rekstrarafkomu. Slík framsetning getur fegrað stöðuna tímabundið, en hún breytir ekki þeirri staðreynd að áhættan lendir að lokum á skattgreiðendum. Ráðið minnir á að reynslan af slíkum skuldbindingum ætti að kenna okkur varfærni, ekki bókhaldslega tilflutninga. Álitsgerð fjármálaráðs er fagleg áminning um að ábyrg fjármálastjórn verður að byggjast á raunverulegri forgangsröðun, gagnsæi og aga sem hefur þol gagnvart breytingum á ytri aðstæðum. Hallalaus fjárlög eru mikilvæg en ef áætlunin byggist á sjálfvirkum útgjaldavexti, óskýrri framkvæmd reglna og áframhaldandi skuldasöfnun þá er það ekki ábyrg fjármálastjórn. Það sem skiptir máli er ekki aðeins hvort rekstrarreikningurinn komist réttum megin við núllið heldur hvort ríkisfjármálin séu í raun orðin sjálfbærari og sterkari. Að mati fjármálaráðs er ríkisstjórnin ekki að ná því markmiði. Það eru slæmar fréttir fyrir fjölskyldurnar í landinu. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Reykvíkinga. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Trump ræðst aftur á páfann Bjartsýnn á nýja þjóðarhöll Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Birti ögrandi myndir af sér fáklæddri Linda Ben: Fiskur og franskar í Air Fryer Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Teljum okkur vera komna með skýra mynd af atburðarásinni“ Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Myndskeið: Telja svigrúm til að lækka álögur á íbúa Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Lætur gott af sér leiða í La Marina Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Loftbrú breytt peninganna vegna Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Bleikjur struku úr landeldisstöð Hefur gefið milljónir til fjölskyldna í neyð Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Trump ræðst aftur á páfann Bjartsýnn á nýja þjóðarhöll Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Birti ögrandi myndir af sér fáklæddri Linda Ben: Fiskur og franskar í Air Fryer Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Ræða gagnrýni á stórtónleikana Myndskeið: Telja svigrúm til að lækka álögur á íbúa Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Lætur gott af sér leiða í La Marina Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Loftbrú breytt peninganna vegna Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Bleikjur struku úr landeldisstöð Hefur gefið milljónir til fjölskyldna í neyð Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article