Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengur á bak orða sinna um skatta á ferðaþjónustu

Read Full Article →

Í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar eru kynnt áform um að draga úr „skattastyrkjum“ í virðisaukaskatti. Annars vegar er kveðið á um að lækka eigi endurgreiðsluhlutfalli vegna vinnu við íbúðarhúsnæði, sem nemur í dag 35%, og hins vegar verði horfið frá „þeirri ívilnandi stefnu“ að skattleggja aðgang að baðlónum í neðra þrepi VSK fremur en almennu þrepi. „Skattastyrkir í VSK eru miklir hérlendis en þeir draga úr tekjuskilvirkni skattsins. Enn fremur getur skattastyrkur verið ómarkviss leið að því markmiði sem hann beinist að í hverju tilviki,“ segir í fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031. „Fyrirhugað er að draga úr skattastyrkjum í VSK til samræmis við stefnu stjórnvalda um að fækka undanþágum í skattkerfinu og mun það hafa tekjuauka í för með sér, auk þess að styrkja þá eiginleika VSK að hann sé hlutlaus gagnvart mismunandi tegundum vöru og þjónustu.“ Diljá Matthíasardóttir, hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), bendir í færslu á Facebook að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi sagt á blaðamannafundi við myndun ríkisstjórnarinnar þann 21. desember 2024: „Við ætlum ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu“. „Það eru ódýr pólitísk leikbrögð að segja eitt og gera annað, síendurtekið. Orð skipta máli, sér í lagi þeirra sem sitja í ríkisstjórn lýðveldisins,“ skrifar Diljá.

Share this article