Innlent | Morgunblaðið | 7.5.2026 | 8:36 Sést ekki fyrir í ríkisútgjöldum Sigmundur Davíð og Lilja Dögg. Samsett mynd/Karítas Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Gallup Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu „Ég segi nei“ Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu » Fleiri tengdar fréttir „Ítrekað hafa borist aðvaranir frá fjármálaráði um hvernig hefur verið haldið á fjárlagagerð og stórum útgjaldafrumvörpum og þetta er enn ein áminning um að ríkisstjórnin sést ekki fyrir í ríkisútgjöldum og hefur ekki náð tökum á verkefninu þrátt fyrir að láta kjósa sig út á að ná tökum á vöxtum og verðbólgu.“ Þetta segir segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins um minnisblað fjármálaráðuneytisins til fjárlaganefndar þar sem fram kemur að stefni í 57 milljarða framúrkeyrslu fjárlaga. Sigmundur nefnir að í þessum tölum ráðuneytisins komi fram að áhrif innflytjendamála hafi verið mjög vanmetin. „Raunverulegur kostnaður við stjórnleysið í útlendingamálum er miklu meiri en nemur umsýslu málaflokksins og raskar öllum áætlunum heilbrigðisþjónustu og menntamála, kemur ekki fram með skýrum hætti og kostnaðurinn sem er skráður beint í umsýsluna er vanmetinn. Þótt ívið færri komi til landsins þetta ár þá eru hinir sem komu áður allir hér ennþá og þiggja áfram þjónustu.“ Í minnisblaðinu kemur m.a. fram að beinn kostnaður ríkisstjórnarinnar eykst úr tæpum 600 milljónum í tæpa 1,4 milljarða og segir Sigmundur að þessi ríkisstjórn hafi farið frjálslega með peninga þegar kemur að henni sjálfri. „Hún veigrar sér ekki við að fjölga fólki hér og þar í að vinna að hinum ýmsu verkefnum fyrir sig og útdeila peningum í það sem þeir telja til vinsælda fallið hverju sinni.“ Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins segir að 9% aukning á ríkisútgjöldum á milli ára, þar sem verkefnið var að ná tökum á verðbólgu og vöxtum, sé óábyrgt og kyndi undir verðbólgu. „Það mun taka enn lengri tíma að ná tökum á verðbólgunni vegna þess að það ríkir ekki agi í ríkisfjármálum. Það sem verra er; það er ekkert eitt sem skýrir þetta heldur eru þetta margir þættir.“ Hún segir að gagnvart trúverðugleika hagstjórnarinnar séu þetta mjög slæm tíðindi. „Það þarf styrkari stjórn. Ríkisfjármálin verða að hjálpa Seðlabankanum. Fyrri ríkisstjórn var með aðhald upp á 1,56% en þessi ríkisstjórn er það ekki. Tekjurnar aukast en útgjöldin aukast of mikið og það eru verstu skilaboð sem ríkisstjórn getur sent heimilunum, fyrirtækjunum og markaðnum. Þessi ríkisstjórn er ekki að fást við kórónuveirufaraldurinn og ekki við jarðelda og því er erfitt að skilja hvað sé í gangi, satt best að segja.“ Spurð um 774 milljóna aukinn kostnað í rekstri ríkisstjórnarinnar sjálfrar segir Lilja að í öllum sparnaðaraðgerðum verði hver og einn að byrja á sjálfum sér og tölurnar sem sjáist um aukningu hjá ríkisstjórninni sjálfri séu sláandi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Alþingi Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Gallup Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu „Ég segi nei“ Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Snýst um að vera ekki handónýtur í framtíðinni Sést ekki fyrir í ríkisútgjöldum Aldrei séð svo mikið af laxi ganga niður Myndskeið: FH-ingurinn sleginn í punginn Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Samfylkingin tryggir uppbyggingu fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vorið lætur bíða eftir sér Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Íslenski skálinn opnaður: „Ég er pínu meyr“ 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu ESB upplýst en þjóðin ekki Ráðuneytið hafi vísvitandi málað ranga mynd Fresta áformum um frían Strætó fyrir reykvísk börn 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Hlynnt því að byggja golfvöll Íslendingar í eldlínu mótmælanna á Tvíæringnum Ekki ósanngjarnt að rukka fyrir rennuna Brauðrist setti af stað töluvert viðbragð Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“ Nýjast á mbl.is » Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Snýst um að vera ekki handónýtur í framtíðinni Sést ekki fyrir í ríkisútgjöldum Aldrei séð svo mikið af laxi ganga niður Myndskeið: FH-ingurinn sleginn í punginn Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Samfylkingin tryggir uppbyggingu fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fyrst og fremst gert fyrir þjóðina“ Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu ESB upplýst en þjóðin ekki Ráðuneytið hafi vísvitandi málað ranga mynd Fresta áformum um frían Strætó fyrir reykvísk börn 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Hlynnt því að byggja golfvöll Íslendingar í eldlínu mótmælanna á Tvíæringnum Ekki ósanngjarnt að rukka fyrir rennuna Brauðrist setti af stað töluvert viðbragð Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“