Ríkisstjórnin stendur frammi fyrir miklum og erfiðum úrlausnarefnum þegar kemur að efnahagsmálunum. Reyndar efast Týr um að stjórnarliðar geri sér nokkra grein fyrir vandanum sem við er að etja. Engin ríkisstjórn hefur verið jafn gjörn á að stæra sig af óunnum verkum og sú sem nú situr undir forsæti Kristrúnar Frostadóttur. Verklagið er að fram er sett eitthvert plan um að ná einhverjum markmiðum og síðan er sigri hrósað með setningum frá spunakörlum ríkisstjórnarinnar á borð við: „Við sögðumst ætla að laga ríkisfjármálin og við gerðum það“ eða „Við sögðumst ætla að ná hallalausum fjárlögum og við gerðum það“. Týr bíður nú bara eftir að stjórnarliðar segist hafa sagt að þeir ætluðu að vera frjósamir og fjölga sér og hafi staðið við það, og að planið sé nú að fylla jörðina og gera sér hana undirgefna. *** Staðreynd málsins er að ríkisfjármálin eru í ólestri og ekkert gengur hjá stjórnvöldum að ná tökum á verðbólguvandanum. Ný hagspá Landsbankans sýnir glögglega á hve skömmum tíma óveðursskýin hafa hrannast upp og á hversu veikum stoðum tekjuforsendur áætlana ríkisstjórnarinnar til næstu ára standa. Eina svarið sem ríkisstjórnin hefur við þessum vanda er að hækka skatta til þess að fóðra áframhaldandi vöxt ríkisins, sem svo viðheldur verðbólgunni, eins og nýleg dæmi sýna. *** Það sýnir ágætlega hversu aftengd ríkisstjórnin er hinum efnahagslega veruleika að hún boðar skyndilega og með skömmum fyrirvara til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðlögunarviðræðna við Evrópusambandið. Sagt er að ef meirihluti sé fyrir aðlögun að ESB geti viðræður við Brussel-valdið hafist við upphaf næsta árs. Ljóst er að slíkar viðræður myndu taka til sín mikinn kraft frá embættismannakerfinu og mikinn tíma frá ráðherrum ríkisstjórnarinnar, að ekki sé minnst á kostnaðinn. Týr er nokkuð viss um að þorri landsmanna kysi að ráðamenn einbeittu sér frekar að verkefnunum heima fyrir þegar slíkar blikur eru á lofti í efnahagsmálum þjóðarinnar. Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 21. apríl 2026.