Arna Sigríður Albertsdóttir keppti í tíu kílómetra sitjandi skíðagöngu á Vetrarólympíuleikum fatlaðra í morgun. Arna Sigríður endaði í 19. sæti af 19 keppendum og kláraði á tímanum 40:01,08. Arna segist sátt þótt hún hefði viljað sjá önnur úrslit. „Mér líður bara ágætlega, auðvitað fór keppnin ekki alveg eins og planið var en ég er glöð að hafa klárað.“ Arna Sigríður Albertsdóttir lauk keppni á Vetrarólympíuleikum fatlaðra í morgun þegar hún keppti í tíu kílómetra sitjandi skíðagöngu. Arna Sigríður slær ekki slöku við því hjólatímabilið hefst innan skamms. Um miðja brautina var krefjandi brekka niður í snúning og sú reyndist Örnu erfið. „Þetta var svolítið erfið braut. Það var búið að salta hana núna sem var ekki gert á æfingum í gær. Hún var svolítið hraðari í þessari beygju. Ég datt í fyrstu tveimur beygjunum af fjórum. Í öðru skiptinu fer ég aðeins út í grindverk og brýt skíðið.“ Þá neyddist hún til að skipta um skíði sem tafði umtalsvert. Þá segist Arna gjarnan vilja halda áfram á skíðunum og er með markmið í huga. „Það er kannski hægara sagt en gert en mig langar mikið að halda áfram á skíðum og reyna að komast til Frakklands eftir fjögur ár.“ Arna fer beint á hjólið Arna Sigríður segist ætla að taka smá hvíld en slær þó ekki slöku við lengi. „Hjólatímabilið byrjar eftir viku eða tíu daga.“ Arna Sigríður hefur einnig keppt í handahjólreiðum á Ólympíuleikunum, þá á sumarleikum.