Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hlutverk Hafrannsóknastofnunar verði einfaldað

Read Full Article →

Lagt er til í skýrslu Deloitte, sem endurkoðunar- og ráðgjafarfyrirtækið vann fyrir atvinnuvegaráðuneytið, að lögbundið hlutverk Hafrannsóknastofnunar verði einfaldað og gert skýrara með sérstakri áherslu á vísindadrifna ráðgjöf og grunnrannsóknir. Skýr aðgreining verði á milli rannsókna og ráðgjafar innan stofnunarinnar og lagt er til að meiri áhersla verði lögð á stjórnunarfærni samhliða sérfræðiþekkingu í hæfnisskilyrðum forstjóra. Þá þurfi að skerpa á stjórnskipulagi og fækka undirmönnum. Í frétt á heimasíðu stjórnarráðsins segir að markmið skýrslugerðarinnar hafi verið að meta stöðu stofnunarinnar, greina helstu áskoranir og leggja fram tillögur að úrbótum með hliðsjón af þjóðhagslegu mikilvægi haf- og vatnarannsókna fyrir íslenskt samfélag. Í skýrslunni kemur m.a. fram að ákvarðanir um verndun og nýtingu auðlinda þurfi að byggjast á traustum vísindalegum grunni og ábyrgri ráðgjöf til að verðmætasköpun auðlinda hafs og vatna megi vera sjálfbær til lengri tíma. Í skýrslunni eru m.a. lagðar fram eftirfarandi tillögur: Efling stefnu og skýrara hlutverk Lagt er til að lögbundið hlutverk stofnunarinnar verði einfaldað og gert skýrara með sérstakri áherslu á vísindadrifna ráðgjöf og grunnrannsóknir. Einnig að þróaðir verði mælikvarðar fyrir árangur ráðgjafar til að auka gagnsæi og trúverðugleika. Hlutverk ferskvatnssviðs verði endurmetið með það að markmiði að kjarnaverkefni séu í forgangi og þjónustuverkefnum verði sinnt af einkaaðilum eins og kostur er. Skýr aðgreining verði á milli rannsókna og ráðgjafar innan stofnunarinnar. Styrking stjórnsýslu og skipulags Í skýrslunni er bent á að auka þurfi formfestu í samskiptum ráðuneytis og stofnunar. Einnig þurfi að virkja ráðgjafarnefnd með markvissari hætti og skerpa á skipulagi og fjármálastjórn. Lagt er til að meiri áhersla verði lögð á stjórnunarfærni samhliða sérfræðiþekkingu í hæfnisskilyrðum forstjóra. Skerpa þurfi á stjórnskipulagi, fækka beinum undirmönnum og tryggja að lykilþættir eins og skiparekstur hafi skýran og sýnilegan sess í skipuriti. Efling starfsanda og nýliðun Efla þurfi mannauðsstjórnun innan stofnunarinnar og bæta vinnustaðarmenningu. Unnið verði markvisst með stjórnvöldum og menntastofnunum, sérstaklega Háskóla Íslands, að aukinni menntun og áhuga á fiskifræði og tengdum greinum til að tryggja nýliðun. Lagt er til í skýrslunni að tryggt sé til framtíðar að hlutverk Hafrannsóknastofnunar og framkvæmd verkefna þróist í takt við breyttar þarfir samfélagsins, tækniþróun, stöðu alþjóðamála og kröfur um sjálfbæra og fjölþætta nýtingu hafsins. Miðlunarhlutverk stofnunarinnar er talið mikilvægt til að stuðla að gagnsæi, trausti og upplýstri umræðu um nýtingu og vernd lifandi auðlinda, sem jafnframt er forsenda samfélagslegs umboðs stofnunarinnar og traustrar ákvarðanatöku. „Þessi skýrsla mun nýtast vel í þeirri vinnu sem nú þegar er hafin í ráðuneytinu“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Frumvarp mitt um Hafrannsóknastofnun er nú í meðferð Alþingis, okkar takmark er að Hafrannsóknastofnun verði eins vel í stakk búin og kostur er til að sinna sínu vísindalega og samfélagslega hlutverki til framtíðar.“ Skýrsluna má nálgast hér.

Share this article