Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 11.3.2026 | 16:11 Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Hafrannsóknunarskipið Þórunn Þórðardóttir við höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Dökk mynd er dregin upp af stjórnun Hafrannsóknastofnunar í nýrri skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið Deloitte vann fyrir atvinnuvegaráðuneytið og eru margar og víðtækar tillögur gerðar að endurbótum. Af skýrslunni má ráða að miklar brotalamir séu í stjórnun stofnunarinnar og er í því samhengi bent á reynsluleysi forstjóra, óljósa forgangsröðun verkefna og árgreinings innan vinnustaðar. Slæm vinnustaðamenning „Hafrannsóknastofnun hefur glímt við stjórnunarlegar áskoranir og skort á stefnu,“ segir í skýrslunni. „Þetta birtist meðal annars í óskýrum áherslum, óljósum kjarnaverkefnum, ófullnægjandi árangursmælikvörðum og skorti á yfirsýn yfir kostnað starfsþátta.“ Er tekið fram að afleiðingar þessa birtist meðal annars í óleystum ágreiningi á vinnustaðnum með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á vinnustaðamenningu. Ekki hafi verið tekið fast á vandamálum sem upp hafa komið og eftirliti með stjórnun stofnunarinnar sé ábótavant. Í skýrslunni er tíundað að vinnustaðarmenning stofnunarinnar hafi lengi staðið höllum fæti og löngu sé tímabært að grípa til aðgerða. „Gögn úr bæði ytri og innri könnunum sýna viðvarandi starfsánægju undir viðmiðum. Hún hefur ekki batnað að marki þrátt fyrir tilraunir til umbóta sem hafa fyrst og fremst byggt á kaupum á aðkeyptri mannauðsráðgjöf.“ Forstjórar ekki starfinu vaxnir Í skýrslunni er látið í veðri vaka að hluta vanda stofnunarinnar megi rekja til reynsluleysis forstjóra Hafrannsóknastofnunar en samkvæmt lögum vegur menntun á verkefnasviði stofnunarinnar þyngst við ráðningu forstjóra. „Að mati Deloitte hefur þessi áhersla og takmörkuð reynsla og þekking skipaðra forstjóra á að taka við stjórnun flókinnar stofnunar, haft mikil áhrif á margar þær stjórnunarlegu áskoranir sem stofnunin hefur staðið frammi fyrir og átt erfitt með að greiða úr,“ segir í skýrslunni. Frétt af mbl.is Veit ekki á hverju ákvörðun ráðherra byggist Er það mat Deloitte að nauðsynlegt sé að endurskilgreina hæfnisskilyrði fyrir stöðu forstjóra Hafrannsóknastofnunar svo hægt sé að takast á við „viðvarandi stjórnunarvanda“. Þá er tekið fram að eftirlit ráðuneytis með stofnuninni hafi hvorki verið skipulagt né skilvirkt. Einnig þurfi að virkja ráðgjafanefnd með markvissari hætti. Óljós markmið og forgangsröðun Deloitte gagnrýnir að hlutverk stofnunarinnar séu skilgreind með óskýrum hætti í lögum. Eru þau í 18 liðum án forgangsröðunar og hvorki séu veiðiráðgjöf og langtímarannsóknir á stofnum og vistkerfum tiltekin með greinilegum hætti. Í báðum tilfellum sé þó um kjarnahlutverk stofnunarinnar að ræða. Tekið er fram að þörf sé á lagabreytingu sem kjarnar betur skyldur stofnunarinnar og myndar skýrari ramma um hlutverk hennar. Einnig er lagt til að stofnunin dragi að mestu eða öllu leyti úr samkeppnisrekstri, en Hafrannsóknastofnun sinnir ákveðnum verkefnum fyrir einkaaðila og er þar með í samkeppni við aðra einkaaðila. Í skýrslunni er einnig vikið að óskýrri forgangsröðun verkefna og er rík þörf talin á því að flokka verkefni í þrjá meginflokka: grunnhlutverk, kjarnaverkefni og aðrar rannsóknir. Þannig sé rannsóknarhlutverk stofnunarinnar til stuðnings ráðgjafar um nýtingu auðlinda grunnhlutverk og þær rannsóknir sem styðja við ráðgjöf teljist til kjarnaverkefna. „Aðrar rannsóknir eru annars vegar rannsóknir sem styrkja fagþekkingu, aðferðir og alþjóðlegt vísindasamstarf og hins vegar rannsóknir sem flokka má sem almennar vísindalegar undirstöður sem fara betur innan háskóla en fagstofnunar.“ Greinilegt er að hingað til hefur ekki verið skýr yfirsýn yfir tegund verkefna og leggur Deloitte því til að greining fari fram á því hvernig verkefni flokkast til að gæta forgangsröðunar í samræmi við skyldur stofnunarinnar. Vinna þegar hafin í ráðuneyti Í tilkynningu atvinnuvegaráðuneytis um útgáfu skýrslunnar er vitnað í Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra sem segir að vinna við endurbætur á stjórnun Hafrannsóknastofnunar sé þegar hafin. „Frumvarp mitt um Hafrannsóknastofnun er nú í meðferð Alþingis, okkar takmark er að Hafrannsóknastofnun verði eins vel í stakk búin og kostur er til að sinna sínu vísindalega og samfélagslega hlutverki til framtíðar,“ segir Hanna Katrín jafnframt. Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Enn vex Wisefish í Kanada Helgafellið í viðgerð Útflutningur ógnar góðu orðspori Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fékk nótina í skrúfuna Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu „Það er fiskur úti um allt núna“ 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Farþegamiðstöðin komin með nafn Fékk nótina í skrúfuna Útflutningur ógnar góðu orðspori Helgafellið í viðgerð Enn vex Wisefish í Kanada 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Farþegamiðstöðin komin með nafn Fisk rekur á land á Stokkseyri „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Fleira áhugavert Skýrt umboð skiptir máli Segja víðtækar árásir hafnar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Virða ber eignarrétt landeigenda Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 11.3.26 699,51 kr/kg Þorskur, slægður 11.3.26 719,20 kr/kg Ýsa, óslægð 11.3.26 380,36 kr/kg Ýsa, slægð 11.3.26 427,94 kr/kg Ufsi, óslægður 11.3.26 372,19 kr/kg Ufsi, slægður 11.3.26 461,12 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 11.3.26 353,09 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 11.3.26 Bárður SH 811 Þorskfisknet Þorskur 140 kg Samtals 140 kg 11.3.26 Gréta VE 95 Handfæri Þorskur 1.704 kg Ufsi 446 kg Samtals 2.150 kg 11.3.26 Þrasi VE 20 Handfæri Þorskur 738 kg Ufsi 213 kg Langa 13 kg Ýsa 12 kg Samtals 976 kg 11.3.26 Auður Vésteins SU 88 Lína Þorskur 86 kg Steinbítur 75 kg Langa 55 kg Ýsa 24 kg Keila 13 kg Samtals 253 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Enn vex Wisefish í Kanada Helgafellið í viðgerð Útflutningur ógnar góðu orðspori Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fékk nótina í skrúfuna Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu „Það er fiskur úti um allt núna“ 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Farþegamiðstöðin komin með nafn Fékk nótina í skrúfuna Útflutningur ógnar góðu orðspori Helgafellið í viðgerð Enn vex Wisefish í Kanada 56% síldarafla úthlutað til þriggja útgerða Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Farþegamiðstöðin komin með nafn Fisk rekur á land á Stokkseyri „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Fleira áhugavert Virða ber eignarrétt landeigenda Erfið akstursskilyrði víða á heiðum Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 11.3.26 699,51 kr/kg Þorskur, slægður 11.3.26 719,20 kr/kg Ýsa, óslægð 11.3.26 380,36 kr/kg Ýsa, slægð 11.3.26 427,94 kr/kg Ufsi, óslægður 11.3.26 372,19 kr/kg Ufsi, slægður 11.3.26 461,12 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 11.3.26 353,09 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 11.3.26 Bárður SH 811 Þorskfisknet Þorskur 140 kg Samtals 140 kg 11.3.26 Gréta VE 95 Handfæri Þorskur 1.704 kg Ufsi 446 kg Samtals 2.150 kg 11.3.26 Þrasi VE 20 Handfæri Þorskur 738 kg Ufsi 213 kg Langa 13 kg Ýsa 12 kg Samtals 976 kg 11.3.26 Auður Vésteins SU 88 Lína Þorskur 86 kg Steinbítur 75 kg Langa 55 kg Ýsa 24 kg Keila 13 kg Samtals 253 kg Skoða allar landanir »

Share this article