200 mílur | Morgunblaðið | 13.3.2026 | 11:59 Gagnrýnir framkvæmd úttektar Í nýrri skýrslu Deloitte eru gerðar alvarlegar athugasemdir við stjórnun Hafrannsóknastofnunar en settur forstjóri, Eggert Benedikt Guðmundsson, setur út á framkvæmdina. mbl.is/Eyþór/Sigurður Bogi Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Gerðar eru alvarlegar athugasemdir við ýmsa þætti í stjórnun Hafrannsóknastofnunar, Hafró, í skýrslu sem ráðgjafarfyrirtækið Deloitte tók saman fyrir atvinnuvegaráðuneytið. Er meðal annars bent á reynsluleysi forstjóra, óljósa forgangsröðun verkefna og slæma vinnustaðamenningu. Settur forstjóri stofnunarinnar, Eggert Benedikt Guðmundsson, setur út á framkvæmd Deloitte og segir að sleginn sé alvarlegri tónn en tilefni sé til. „Við tökum ekki undir þann tón sem okkur er sendur þarna í innganginum. Það er svolítið sleginn sá tónn að hér sé allt í volli, það er alls ekki svoleiðis,“ segir Eggert í samtali við mbl.is. Engu að síður sé margt sem megi skoða og brýnast sé að efla samvinnu innan stofnunarinnar. Frétt af mbl.is Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Sumt í farvegi, annað þarf að skoða „Þarna er tæpt á mörgum úrlausnarefnum. Sumu hefur þegar verið brugðist við, sum mál eru þegar í farvegi og svo eru þarna önnur mál sem kannski þarf að bregðast við,“ segir Eggert jafnframt. „Það eru þarna ákveðin atriði sem við höfum bent þeim á að er ekki farið rétt með en það hefur ekki skilað sér inn í lokaskýrsluna.“ Spurður hvað sé ranglega birt í skýrslunni segir Eggert að til að mynda sé því haldið fram að fjárhagslegar upplýsingar um kostnað við rekstur rannsóknaskipa liggi ekki skýrt fyrir en það segir hann ekki vera rétt. Einnig segir hann að mikil vinna hafi farið í það undanfarin ár að fá betra yfirlit yfir fjárhagslegan rekstur stofnunarinnar. „Það sem við höfum kannski verið að horfa til er að efla og koma þeirri þekkingu betur út í fyrirtækið þannig að allar deildir og svið hafi svona betri sýn á fjárhagslegan rekstur, í því skyni að geta bætt hann og haldið betur utan um þeirra yfirlit,“ segir Eggert. „Það er svona eitt af því sem við höfum verið að bæta enn frekar.“ Segir meiri ánægju innan stofnunarinnar Í skýrslu Deloitte er nokkuð fjallað um samskipti á vinnustaðnum og því haldið fram að veruleg þörf sé á að bæta vinnustaðamenningu á stofnuninni. Eggert bendir á í því samhengi að stofnunin hafi á síðasta ári stokkið upp á við í könnun Sameykis, Stofnun ársins, sem framkvæmd er af Gallup. Við stutta eftirgrennslan má sjá að það er rétt. Þótt stofnunin hafi enn þá verið fyrir neðan miðju á listanum fór hún engu að síður upp um tíu sæti. Árið 2023 var Hafrannsóknastofnun í 38. sæti af 45 á meðal stofnana með 90 eða fleiri starfsmenn og var svarhlutfallið á bilinu 50-59%. Árið 2024 var stofnunin í 40 sæti af 46. með svarhlutfall upp á 60-69%. Í niðurstöðum könnunarinnar sem birt var í október á síðasta ári var Hafrannsóknastofnun í 28. sæti af 46 og höfðu 70-79% starfsmanna svarað könnuninni. Breyttar áherslur við ráðningu forstjóra Í skýrslunni var vikið að hæfnikröfum við ráðningu forstjóra og talið að hluta af vandamálum stofnunarinnar mætti rekja til reynsluleysis þeirra af stjórnun. Eggert segir þetta þegar til umfjöllunar í frumvarpsdrögum Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um stofnunina. „Það stendur í núverandi lögum að forstjóri eigi að hafa, ef ég man rétt, háskólamenntun á verkefnasviði stofnunarinnar og það hefur verið túlkað þannig hingað til að það eigi að vera vísindamaður eða sérfræðingur í hafrannsóknum, þó að það sé ekki kannski beint orðað þannig,“ útskýrir Eggert. „Á þinginu núna liggur fyrir lagafrumvarp um að breyta lögum um Hafrannsóknastofnun þar sem þetta er eitt af því sem lagt er til að verði breytt. Þannig að hæfisskilyrði forstjóra verði líkari því sem almennt gerist, sem er að viðkomandi skuli hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi.“ Segir Eggert að þá breytingu megi meðal annars rekja til þess sem bent er á í skýrslunni, að mikilvægt megi teljast að forstjóri hafi reynslu og þekkingu á rekstri eininga. Frétt af mbl.is Veit ekki á hverju ákvörðun ráðherra byggist Brýnast að efla samvinnu á milli sviða Þrátt fyrir gagnrýni sína á framkvæmdina segir Eggert engu að síður að í skýrslunni sé ýmislegt sem taka megi til greina. „Meðal annars hvort eigi frekar að skilja á milli rannsókna og ráðgjafar, sem getur verið skynsamlegt að hluta til og að hluta til ekki,“ segir hann. Þá megi forgangsröðun verkefna vissulega vera skýrari. „Já, forgangsröðun þarf að vera skýr og mögulega skýrari heldur en hún er núna,“ segir Eggert og bætir við að vinna standi yfir við að fastsetja árangursmælikvarða sem geti stutt við forgangsröðun verkefna og viðfangsefna stofnunarinnar. „Ef mæling árangurs er ekki alveg skýr, þá er erfitt að raða hlutum í forgang,“ segir hann. Aðspurður hverju sé brýnast að fylgja eftir úr skýrslunni segir Eggert það vafalaust vera að efla þurfi samvinnu þvert á svið innan stofnunarinnar. „Það er gríðarleg þekking á hafrannsóknum, í rekstri og mannauði innan stofnunarinnar og þar er kannski stóra tækifærið,“ segir Eggert. „Það er lykilatriði, ásamt því að hafa auga á þeim árangursmælikvörðum sem við ætlum að reyna að bæta og forgangsraða í framhaldi af því.“ Skipunartíma Eggerts lýkur í mars en hann segir að ekki sé búið að ráða nýjan forstjóra í stöðuna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Varðskipin verði oftar við gæslustörf 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Ofboðsleg ýsugengd og stutt í þorskinn Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Loðnuveiðum lokið hjá Síldarvinnslunni Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík „Þetta er sukk og spilling“ Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Útflutningur ógnar góðu orðspori 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Hulda tekur við nýrri deild Eimskips „Þetta er sukk og spilling“ Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Ofboðsleg ýsugengd og stutt í þorskinn Vertíð gæti skilað 30 milljörðum Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Loðnuveiðum lokið hjá Síldarvinnslunni Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Hulda tekur við nýrri deild Eimskips „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ „Þetta er sukk og spilling“ Fleira áhugavert Quang Le fær ekki að opna bankareikning Spá hækkun vaxta og verðbólgu Af hverju var dómurinn ómerktur? Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 12.3.26 703,47 kr/kg Þorskur, slægður 12.3.26 651,31 kr/kg Ýsa, óslægð 12.3.26 389,65 kr/kg Ýsa, slægð 12.3.26 395,54 kr/kg Ufsi, óslægður 12.3.26 353,10 kr/kg Ufsi, slægður 12.3.26 390,01 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 12.3.26 330,47 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 13.3.26 Háey I ÞH 295 Lína Ýsa 1.462 kg Steinbítur 681 kg Þorskur 420 kg Ufsi 74 kg Skarkoli 51 kg Keila 41 kg Hlýri 6 kg Samtals 2.735 kg 13.3.26 Björg EA 7 Botnvarpa Karfi 23.071 kg Samtals 23.071 kg 12.3.26 Hafnarey SU 706 Línutrekt Þorskur 11.196 kg Ýsa 1.564 kg Langa 242 kg Keila 109 kg Steinbítur 45 kg Samtals 13.156 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Varðskipin verði oftar við gæslustörf 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Ofboðsleg ýsugengd og stutt í þorskinn Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Loðnuveiðum lokið hjá Síldarvinnslunni Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík „Þetta er sukk og spilling“ Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Útflutningur ógnar góðu orðspori 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Hulda tekur við nýrri deild Eimskips „Þetta er sukk og spilling“ Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Ofboðsleg ýsugengd og stutt í þorskinn Vertíð gæti skilað 30 milljörðum Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Loðnuveiðum lokið hjá Síldarvinnslunni Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Hulda tekur við nýrri deild Eimskips „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ „Þetta er sukk og spilling“ Fleira áhugavert Síminn að kaupa miðla Sýnar Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Bandaríska sendiráðið varar við mannránum Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 12.3.26 703,47 kr/kg Þorskur, slægður 12.3.26 651,31 kr/kg Ýsa, óslægð 12.3.26 389,65 kr/kg Ýsa, slægð 12.3.26 395,54 kr/kg Ufsi, óslægður 12.3.26 353,10 kr/kg Ufsi, slægður 12.3.26 390,01 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 12.3.26 330,47 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 13.3.26 Háey I ÞH 295 Lína Ýsa 1.462 kg Stei