Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir niðurstöðu Hæstaréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða ekki hafa komið sér í opna skjöldu. Hæstiréttur ómerkti í dag dóm Landsréttar. Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru báðir sýknaðir fyrir tilraun til hryðjuverka og aðild í tilraun til hryðjuverka í Landsrétti og Héraðsdómi Reykjavíkur. „Við verðum bara að spyrja að leikslokum. Svo kemur bara ný niðurstaða. Þetta fer aftur til meðferðar í Landsrétti. Síðan kemur nýr dómur þar sem tekið verður á þessum atriðum.“ Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Ríkissaksóknari segir niðurstöðuna ekki koma sér í opna skjöldu en verjandi segir hana vera vonbrigði fyrir umbjóðanda sinn. Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs, segir niðurstöðuna hins vegar hafa komið á óvart. „Þetta var ekkert mikið til umfjöllunar í málflutningi í Hæstarétti en þetta eru nokkuð umfangsmiklar athugasemdir sem þarna eru gerðar,“ segir Einar. „Þetta er bara endurtekin málsmeðferð og það er þá lengri tími sem sakborningar þurfa að bíða eftir því að fá endanlega niðurstöðu og það er auðvitað bagalegt fyrir þá og alla sem að málinu koma.“ Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Ríkissaksóknari segir niðurstöðuna ekki koma sér í opna skjöldu en verjandi segir hana vera vonbrigði fyrir umbjóðanda sinn.