Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs Birgissonar, segir tilfinningar sínar blendnar varðandi úrskurð Hæstaréttar í dag. Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða og vísaði því aftur til dómstólsins. Sindri Snær og Ísidór Nathansson voru báðir sýknaðir fyrir tilraun til hryðjuverka og aðild í tilraun til hryðjuverka í Landsrétti og Héraðsdómi Reykjavíkur. „Þetta hefði getað farið verr,“ segir Sveinn Andri. „Hæstiréttur er ekki að fallast á aðalkröfu ríkissaksóknara um sakfellingu en þeir sjá greinilega einhverja meinbugi á því hvernig Landsréttur vann úr málinu og mat munnlega framburði og tengdi þá saman við athafnir.“ „Ég fæ ekki betur séð en að það þurfi að endurtaka allar spilanir og skýrslutökur,“ segir verjandi Sindra Snæs Birgissonar. Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Hann segir niðurstöðuna vera viss vonbrigði fyrir umbjóðanda sinn, sem hafi vonað að dómur Landsréttar yrði staðfestur. Þeir séu hins vegar reiðubúnir að takast á við nýja málsmeðferð í Landsrétti. „Ég fæ ekki betur séð en að það þurfi að endurtaka allar spilanir og skýrslutökur sem áttu sér stað í Landsrétti en það á eftir að fara yfir það betur.“