Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.3.2026 | 16:17 Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Sindri Snær Birgisson í Landsrétti fyrir ári síðan. mbl.is/Karítas Urður Egilsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ákært fyrir hryðjuverk „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Engin vitneskja né ásetningur um að fremja hryðjuverk Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi » Fleiri tengdar fréttir Hæstiréttur telur að Landsréttur hafi ekki gert heildstætt mat á því hvort athafnir Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar hafi sýnt ótvírætt í verki að þeir ætluðu að fremja hryðjuverk, sérstaklega í ljósi þeirra alvarlegu vopnalagabrota sem þeir voru sakfelldir fyrir. Þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar þar sem dómur Landsréttar í hryðjuverkamálinu var ómerktur. Málinu er því vísað til Landsréttar á ný. Tæplega þrjú og hálft ár eru síðan tvímenningarnir voru handteknir. Dómur Hæstaréttar er ítarlegur og fer stór hluti hans í að fara yfir annmarka dóms Landsréttar. Frétt af mbl.is „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Tveir stórir ágallar Með dómi Landsréttar var héraðsdómur staðfestur meðal annars um sakfellingu Sindra og Ísidórs fyrir stórfelld brot gegn vopnalögum. Jafnframt staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sýknu þeirra af sakargiftum um tilraun til hryðjuverks og hlutdeild í því broti. Hæstiréttur telur að ágallar hafi verið á túlkun Landsréttar á sönnunarkröfum 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þ.e.a.s. tilraunaákvæðisins, svo og á aðferð við sönnunarmat og samningu hins áfrýjaða dóms sem voru til þess fallnir að hafa veruleg áhrif á niðurstöðu málsins. Frétt af mbl.is Ólíkir túlkunarkostir á dómstigunum Meta athafnirnar heildstætt Varðandi fyrra atriðið segir í dómi Hæstaréttar að Landsréttur hafi ekki að öllu leyti lagt réttan skilning í kröfur tilraunaákvæðisins um sönnun fyrir ásetningi til fullframins brots. „Skoða þarf og meta hvort lagatúlkun Landsréttar hafi haft áhrif við sönnunarmat í hinum áfrýjaða dómi og þar með hvort hún hafi verið til þess fallin að hafa áhrif á niðurstöðuna. Jafnframt þarf að taka til skoðunar hvort aðferð Landsréttar við sönnunarmat hafi að öðru leyti verið haldin slíkum annmörkum að áhrif geti hafa haft á niðurstöðu málsins,“ segir í dóminum. Túlkun Landsréttar og héraðsdóms á ákvæðinu var ólík. Hæstiréttur leggur áherslu á að meta verði undirbúningsathafnir sakborninganna heildstætt, eins og saksóknari nefndi ítrekað í málflutningi sínum. „Slíkt heildstætt mat er sérstaklega mikilvægt þegar fyrir liggja athafnir sem í sjálfu sér geta talist venjulegar og löglegar hver fyrir sig en geta verið til þess fallnar að teljast undirbúningsathafnir tiltekins brots í ljósi annarra athafna og atvika sem sönnur hafa verið færðar á,“ segir í dóminum. Frétt af mbl.is Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ísidór sagðist hafa áhyggjur Það var varakrafa ákæruvaldsins að ómerkja dóm Landsréttar í ljósi þess að Landsréttur hefði ekki lagt mat á sönnunargildi framburðar ákærðu. Í dómi Hæstaréttar segir að dómur Landsréttar beri ekki með sér að tekin hafi verið afstaða til eða mat lagt á sönnunargildi framburðar Sindra og Ísidórs um skýringar þeirra á þeim athöfnum og ummælum sem voru þáttur í að undirbúa hryðjuverk. „ Mjög takmörkuð umfjöllun sé í dóminum um framburð ákærðu og við sakarmat hafi ekkert verið fjallað um trúverðugleika framburðar þeirra um einstök atriði með tilliti til fyrirliggjandi sönnunargagna,“ segir í dómi Hæstaréttar. Sem dæmi nefndi ákæruvaldið að í skýrslutökum hjá lögreglu og í viðtölum við framkvæmd geðrannsóknar hefði Ísidór ítrekað sagt að ummæli Sindra hefðu að hans mati ekki verið hefðbundið grín og að hann hefði haft áhyggjur af því hverjar fyrirætlanir hans væru. Frétt af mbl.is Ísidór segist vera einangrunarsinni og rasisti Fyrir héraðsdómi vísaði Ísidór því á bug að hann hefði haft þess konar áhyggjur og það sem hann hefði sagt hefði verið til komið vegna þess að lögregla hefði kúgað hann og þvingað við skýrslutökur. Að mati ákæruvaldsins voru engar vísbendingar um slíkt í málinu og að Landsréttur hefði ekki lagt mat á trúverðugleika þessara skýringa Ísidórs á breyttum framburði. Ísidór Nathansson í Landsrétti. mbl.is/Karítas Í dómi Hæstaréttar segir að dómurinn geti ekki endurmetið niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sönnunargildi munnlegs framburðar. Þótti það því óhjákvæmilegt að ómerkja hinn áfrýjaða dóm í heild sinni og vísa málinu aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Tengdar fréttir Ákært fyrir hryðjuverk „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Engin vitneskja né ásetningur um að fremja hryðjuverk Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Þjálfarabreyting í Borgarnesi „Við hættum að hneykslast og ákváðum að gera eitthvað í málunum“ Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Erfið akstursskilyrði víða á heiðum Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Kíló af kókaíni falið í steyptu borði Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Þjálfarabreyting í Borgarnesi „Við hættum að hneykslast og ákváðum að gera eitthvað í málunum“ Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Æðsti leiðtogi Írans heill á húfi Segja víðtækar árásir hafnar Vilja aukið samstarf í varnarmálum Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Kíló af kókaíni falið í steyptu borði Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason

Share this article