Innlent | mbl | 11.3.2026 | 15:57 Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Ársæll Guðmundsson, fráfarandi skólameistari Borgarholtsskóla, og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og þáverandi félagsmálaráðherra, nú menntamálaráðherra. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Árni Sæberg Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði beiðni Ársæls Guðmundssonar, fráfarandi skólameistara Borgarholtsskóla, um að leiða Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Guðmund Inga Kristinsson, fyrrverandi menntamálaráðherra, til skýrslugjafar fyrir dómi vegna mögulegrar málshöfðunar á hendur íslenska ríkinu. Auk þeirra tveggja voru níu aðrir tilnefndir en í beiðninni var áskilinn réttur til að óska eftir að fleiri yrðu leidd fyrir dóminn ef ástæða þætti til. Í hópi þessara níu voru m.a. embættismenn úr ráðuneytum, formaður Skólameistarafélags Íslands, aðstoðarskólameistari Borgarholtsskóla og formaður nemendafélags skólans. Arnar Þór Stefánsson, lögmaður á Lex, sækir málið fyrir Ársæl og staðfestir hann við mbl.is að héraðsdómur hafi hafnað beiðninni með úrskurði. Frétt af mbl.is Vill Kristrúnu fyrir dóm Úrskurðurinn kærður til Landsréttar Ársæll telur ákvörðunina um að auglýsa stöðu hans vera hefnd og valdníðslu runna undan rifjum Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins og þáverandi félagsmálaráðherra, nú menntamálaráðherra. Ómögulegt sé þó að meta möguleika til málshöfðunar nema með því að kalla alla hlutaðeigendur til vitnis. Rekja má málið til svonefnds „skómáls“ en þar átti Inga í orðaskiptum við skólameistarann vegna týnds skópars í janúar 2025. Ríkislögmaður telur ekki nauðsynlegt að kalla ráðherra eða aðra til vitnis og telur að yfirlýsingar þeirra dugi. Lagaheimild til vitnaleiðslu megi ekki nota í „veiðiferðir“ en ákvörðunina um að auglýsa stöðuna megi aðeins rekja til áforma ráðherra um kerfisbreytingar í framhaldsskólum. Þá eigi ekki að „draga fyrir dóm“ til að staðfesta það. Héraðsdómur telur lagaskilyrði ekki hafa verið uppfyllt. „Ég er ósammála því. Þetta verður kært til Landsréttar,“ segir Arnar Þór. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var meðal þeirra 11 sem óskað var eftir að bæru vitni fyrir dómi. mbl.is/Eyþór Gæti verið fordæmisgefandi Spurður um tímaramma segist Arnar hafa tvær vikur til þess að kæra og að Landsréttur verði að kveða upp lokaúrskurð um það hvort vitnaleiðslurnar verði heimilaðar eða ekki, líklega einhvern tímann í apríl. „Svo veltur framhaldið á úrskurði Landsréttar, nema þetta endi í Hæstarétti. Þetta gæti verið það fordæmisgefandi. Mér finnst þetta algjört grundvallarmál og fordæmisgefandi um það við hvaða aðstæður megi þá leiða ráðherra til vitnis um meinta valdníðslu. Ef það má bara ekki, þá er orðið dálítið snúið að vera í þessu réttarríki finnst mér. Mér finnst túlkunin vera allt of þrengjandi.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Þjálfarabreyting í Borgarnesi „Við hættum að hneykslast og ákváðum að gera eitthvað í málunum“ Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkandi verð á áburði vegna stríðs Skýrt umboð skiptir máli Vilja aukið samstarf í varnarmálum Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Kíló af kókaíni falið í steyptu borði Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Baldvin Orri í nýtt starf hjá Kemi Þjálfarabreyting í Borgarnesi „Við hættum að hneykslast og ákváðum að gera eitthvað í málunum“ Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Virða ber eignarrétt landeigenda Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Æðsti leiðtogi Írans heill á húfi Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Kíló af kókaíni falið í steyptu borði Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason