Landsréttur hefur staðfest ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði beiðni Ársæls Guðmundssonar um að leiða vitni fyrir dóm í vitnaleiðslumáli. Ársæll vildi að ráðherrar, aðstoðarmenn þeirra og fleira fólk yrði leitt fyrir dóm. Þannig hugðist hann leita sönnunar á því sem gerðist þegar Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, ákvað að auglýsa stöðu Ársæls sem skólameistari Borgarholtsskóla í stað þess að framlengja skipun hans. Ársæll hefur látið af störfum. Hann hefur verið í veikindaleyfi síðan í febrúar og staðfesti í viðtali við fréttastofu í mars að hann sneri ekki aftur til starfa. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu Ársæls sem kærði úrskurðinn til Landsréttar. Áfrýjunardómstóllinn komst að sömu niðurstöðu. Dómararnir sögðu að Ársæll hefði ekki rökstutt sérstaklega hvað hann ætlaði að leiða í ljós með hverju vitni. Því hefði hann ekki sýnt fram á að hann hefði lögvarða hagsmuni af slíkum vitnaleiðslum. Landsréttur tók einnig fram að ekki væri hægt að kalla Guðmund Inga til vitnis í vitnaleiðslumáli þar sem hann kynni að verða aðili að málaferlum Ársæls í framtíðinni. Ársæll vildi láta taka vitnaskýrslur af Guðmundi Inga Kristinssyni, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, Ágústi Ólafi Ágústssyni og Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur, aðstoðarmönnum mennta- og barnamálaráðherra, Hreiðari Inga Eðvarðssyni og Sigurjóni Arnórssyni, aðstoðarmönnum félags- og húsnæðismálaráðherra, Kristínu Ólafsdóttur, aðstoðarmanni og Ólafi Kjaran Árnasyni aðstoðarmönnum forsætisráðherra, Helgu Kristínu Kolbeins, formanni Skólameistarafélags Íslands, Ástu Laufeyju Aðalsteinsdóttur, aðstoðarskólameistara Borgarholtsskóla, og Halli Hrafni Garðarssyni Proppé, formanni nemendafélags sama skóla.
This article does not describe a technical vulnerability, threat, or software security issue. It is a legal news report about a court case in Iceland where an individual's request to subpoena government ministers and their aides as witnesses in an employment-related matter was denied. The summary requested for IT security professionals is not applicable to this content.