- What: Three men charged with looting ancient artifacts in Sweden
- Impact: Cultural heritage law violation
Þrír sænskir menn á sjötugsaldri hafa verið ákærðir fyrir stórfellt brot á sænskum þjóðminjalögum. Tveir mannanna fundu silfursjóð frá víkingaöld í Jönköping árið 2018, sjóðinn fundu þeir með hjálp málmleitartækis sem er samkvæmt sænskum lögum óheimilt. Þriðji maðurinn var einnig ákærður fyrir hlutdeild í stórfelldu broti á þjóðminjalögum. Þrátt fyrir að hann hafi ekki aðstoðað við uppgröftinn er hann sagður hafa reynt að aðstoðað mennina við sölu á minjunum. Neita allir sök Þær fornminjar sem finnast á sænskri grundu ber að afhenda ríkinu tafarlaust. Það gerðu mennirnir ekki en að lokum skiluðu þeir þó gripunum með milligöngu nafnlauss fulltrúa. Alls liðu sex ár frá því sjóðurinn fannst og þangað til honum var skilað í réttar hendur árið 2024. Mennirnir þrír neita allir sök, einn þeirra grunuðu segir í samtali við SVT að hann hafi ekki áttað sig á því að ólöglegt væri að leita með málmleitartæki. Hann hafi áður notast við hjálp þess í Danmörku þar sem önnur löggjöf gildir. „Mér hefur liðið virkilega illa yfir þessu. Ég hef áður verið með hreint sakavottorð, en lögum verður að fylgja og ég verð að taka þeirri refsingu sem fylgir.“ Sjóðurinn er talinn vera frá víkindaöld eða um 800–1050 e.Kr. Hann fannst við Ölmstad-kirkju í Jönköping. Sami maður segist í samtali við SVT vera miður sín, markmiðið hafi aðeins verið að koma bænum Ölmstad á kortið.