Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.3.2026 | 9:00 Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Hjálmar Sveinsson mbl.is/Rax Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Það hefur ekki farið hátt í almennri umræðu að starfsleyfi Reykjavíkurflugvallar rann út síðustu áramót. Um er að ræða starfsleyfi sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur veitir vegna reksturs flugvallarins. Leyfið er gefið út í samræmi við ákvæði laga um nr. 7/1998 og reglugerðir um mengunareftirlit, hávaða, mengaðan jarðveg og fráveitur. Í ljósi mikillar fjölgunar kvartana yfir hávaða og ónæði frá þyrluflugi, svokölluðum snertilendingum og ræsingu einkaþotna nálægt íbúðabyggð lagði Heilbrigðiseftirlitið til þrepaskiptar tímatakmarkanir næstu árin til að draga úr ónæðinu. Lagt er til að snertilendingar leggist alveg af 2029. Takmarkanirnar snúa ekki að áætlunarflugi eða sjúkraflugi, neyðarflugi eða þeim tilfellum sem flugvöllurinn er notaður sem varaflugvöllur. Hávaði, ónæði Í nóvember síðastliðnum fékk Isavia send drög að endurnýjuðu starfsleyfi með þessum takmörkunum. Vonir stóðu til að hægt yrði að endurnýja starfsleyfið og auglýsa svo það tæki gildi í tæka tíð, það er að segja um áramótin. Ekkert varð af því heldur brá Isavia á það ráð að sækja um bráðabirgðastarfsleyfi til Umhverfis- og orkustofnunar. Heimildin var veitt 18. desember til eins árs. Eftir því sem ég best veit voru aðilar málsins sáttir við þá bráðabirgðalausn. Það er hins vegar ljóst að Isavia verður fljótlega að bregðast við tillögum Heilbrigðiseftirlitsins. Tímatakmarkanirnar snúa að því flugi sem veldur íbúum í Vesturbæ og miðborg Reykjavíkur og á Kársnesi í Kópavogi mestum hávaða og ónæði. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tekur stórauknar kvartanir vegna þessa flugs alvarlega. Isavia hlýtur að gera hið sama. Samræður fulltrúa heilbrigðiseftirlitsins og Isavia um tillögurnar hófust nú í vikunni. Það er vel. Heilbrigðiseftirlitinu ber skylda til að láta málið til sín taka. Samkomulag um æfinga- og kennsluflug Rétt er að rifja upp að árið 2013 var samkomulag innanríkisráðherra og borgarstjóra undirritað um að Isavia og innanríkisráðuneytið tækju að sér að finna nýjan stað fyrir æfinga- og kennsluflug nálægt borginni. Í samningnum stóð meira að segja að hefja skyldi framkvæmdir eins fljótt og auðið væri. Einhverra hluta vegna hafa viðkomandi ráðuneyti og Isavia kosið að standa ekki við þessa samninga. Í apríl 2025 samþykkti meirihluti borgarstjórnar tillögu Viðreisnar þar sem lagt var til að borgarstjóra yrði falið að beita sér fyrir því að færa umferð einkaþotna og almennt kennslu- og þyrluflug frá Reykjavíkurflugvelli hið fyrsta og taka aftur upp samtal við ríkið á samkomulagi sem gert var 25. október 2013 sem undirritað var af þáverandi borgarstjóra og innanríkisráðherra. „Markmið tillögunnar er að skapa sátt og þá umgjörð um áætlunar- og sjúkraflug á Reykjavíkurflugvelli sem þarf þar til nýr staður er fundinn en um leið að draga úr mengun, slysahættu og ónæði fyrir íbúa í nágrenni flugvallarins.“ Sjálfstæðismenn í borgarstjórn greiddu atkvæði gegn þessari tillögu. Framsókn sat hjá. Mikil flugumferð á litlu svæði Ekki verður hjá því komist að nefna tvö nýleg alvarleg flugatvik, bæði tengd kennslu- og æfingaflugi: Tíunda júní á liðnu ári datt nefhjól af kennsluflugvél sem kom inn til lendingar og var flogið lágt yfir Austurvöll. Nefhjólið lenti á gangstéttarhellu við Alþingishúsið og braut hana rétt hjá hópi ferðamanna. Óhætt er að segja að þar hafi hurð skollið mjög nærri hælum en mér er ekki kunnugt um hvort gerðar hafi verið ráðstafanir til að setja slíku flugi meiri skorður. Hitt atvikið varð fyrir einu og hálfu ári eða sjötta október 2024. Tvær kennsluflugvélar komu þá hættulega nálægt hvor annarri í 400 feta hæð yfir Kópavogi í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli. Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa er hvatt til breytts verklags á Reykjavíkurflugvelli og aukinnar þjálfunar flugumferðarstjóra. Að mati nefndarinnar sýnir atvikið hversu viðkvæmur rekstur Reykjavíkurflugvallar er þar sem mikil flugumferð fer fram á litlu svæði. Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi og formaður Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kappahl opnar á laugardag Sögulega há álagning á bensínlítrann Þurfum ekki að vera sammála þó að við séum samstiga Rekstrarumhverfi venjulegra fyrirtækja er orðið mun flóknara Síminn í viðræðum um kaup á Vísi og Bylgjunni Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Ferðamenn lentu á kafi í vatni Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir Andlát: Þorkell Jóelsson „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Felix Ólafsson Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Norðanhríðaveður og gular viðvaranir Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Kappahl opnar á laugardag Sögulega há álagning á bensínlítrann Þurfum ekki að vera sammála þó að við séum samstiga Rekstrarumhverfi venjulegra fyrirtækja er orðið mun flóknara Síminn í viðræðum um kaup á Vísi og Bylgjunni Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir Andlát: Þorkell Jóelsson „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Felix Ólafsson Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Löng bið eftir tíma hjá heimilislækni Norðanhríðaveður og gular viðvaranir Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Andlát: Árni Árnason

Share this article