Fjölmiðlar Síminn vinnur að kaupum á Vísi, Bylgjunni og fleiri miðlum Síminn og Sýn hafa undirritað skilmálaskjal um að Síminn kaupi útvarps- og vefmiðla Sýnar. Kaupverðið er rúmir fimm milljarðar króna. Brynjólfur Þór Guðmundsson 12. mars 2026 kl. 09:08, uppfært kl. 09:24 A A A Höfuðstöðvar Sýnar. RÚV – Ragnar Visage Síminn á í samningum við Sýn um að kaupa net- og útvarpsfjölmiðlana Vísi, Bylgjuna, Léttbylgjuna, FM957 og X977 auk fleiri vefmiðla og útvarpsstöðva. Fyrirtækin hafa undirritað samkomulag um helstu skilmála vegna fyrirhugaðra kaupa. Kaupverðið nemur samkvæmt þessu 5,25 milljörðum króna og er gert ráð fyrir að tekjur miðlanna nemi þremur milljörðum króna á ársgrundvelli. Í tilkynningum Símans og Sýnar til Kauphallarinnar. Þar segir að fyrirtækin skuldbindi sig til að vinna að því að undirrita kaupsamning. Viðskiptin eru þó háð áreiðanleikakönnun, samkomulagi um endanlegan kaupsamning, samþykki stjórna beggja fyrirtækjanna og samþykki eftirlitsaðila. Í tilkynningu Sýnar segir að salan sé hluti af því að einfalda starfsemi fyrirtækisins og styrkja rekstrargrundvöll þess til framtíðar. Í tilkynningu Símans segir að kaupin á miðlunum falli vel að að því að fyrirtækið veiti fréttir og afþreyingu. Þar er vísað til kaupanna á Billbaord og framþróunar auglýsingatækni innan Símans. Fréttin hefur verið uppfærð. Hvað kaupir Síminn ef af viðskiptunum verður? Vísir Já.is Innherji Bland.is Bylgjan Léttbylgjan Gullbylgjan FM957 X977 Tal (hlaðvarpsveita) Vinnureglur um fréttir og dagskrárefni RÚV er óháð hagsmunum stjórnmála, viðskipta, opinberra aðila og einkaaðila. Fréttaflutningur og dagskrárgerð okkar byggir á trúverðugleika og óhlutdrægni. Starfsfólk RÚV starfar samkvæmt vinnureglum um fréttir og dagskrárefni. Meira frá RÚV Utanríkismál Ísland tekur þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael FRÉTTAVAKT Stríð í Mið-Austurlöndum Stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum Menntamál Of lítið unnið með niðurstöðurnar Dómstólar Svía bannað að snúa aftur til Íslands vegna íkveikju í bíl lögreglukonu Peningar Segja álagningu olíufélaganna vera sögulega háa Svíþjóð Þrír menn ákærðir fyrir stórfellt brot á þjóðminjalögum Blak Í dag: Ballið byrjar í blakinu Heilbrigðismál Viðskiptaráð telur að bæta megi heilsugæslu með aukinni samkeppni Senegal Hámarksrefsing við samkynhneigð hækkuð úr fimm árum í tíu Mest lesið á RÚV.is 1 Sveitarstjórnarkosningar 2026 Stofna nýjan flokk og verða rekin úr ráðum 2 Stríð í Mið-Austurlöndum Ekkert lát á árásum – Khamenei sagður særður 3 Lögreglumál Rannsókn lögreglu á tveimur hópnauðgunum lokið 4 Arkitektúr Skipulagsmál eru pólitík: „Það er verið að byggja of mikið af íbúðum sem menn vilja ekki kaupa“ 5 Handbolti Björgvin Páll: „Vil finna meira fyrir því að hann sé að henda mér út“ 6 Hryðjuverkamálið Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í hryðjuverkamálinu Fleiri innlendar fréttir Utanríkismál Ísland tekur þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael Samgöngur Ófærð, slæm færð og óvissustig á vegum Peningar Segja álagningu olíufélaganna vera sögulega háa Dómstólar Svía bannað að snúa aftur til Íslands vegna íkveikju í bíl lögreglukonu Veður Norðanhríð til morguns Heilbrigðismál Viðskiptaráð telur að bæta megi heilsugæslu með aukinni samkeppni Sveitarstjórnarkosningar 2026 Listi Samfylkingarinnar og óháðra í Árborg samþykktur Samgöngur Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Aðrir eru að lesa núna 1 Stríð í Mið-Austurlöndum Stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum 2 Utanríkismál Ísland tekur þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael