Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Sýnar hækkar um 20%

Read Full Article →

Hlutabréfaverð fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækisins Sýnar hefur hækkað um 20% í fyrstu viðskiptum í dag eftir að tilkynnt var um að félagið hefði gengið til einkaviðræðna við Símann á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Sjá einnig Síminn að kaupa vef- og út­varps­miðla Sýnar Gengi Sýnar stendur í 21,6 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð, samanborið við 18,0 krónur við lokun Kauphallarinnar í gær. Markaðsvirði Sýnar hefur því hækkað um tæplega 900 milljónir króna og nemur nú rúmlega 5,3 milljörðum króna. Hlutabréfaverð Símans hefur lækkað um 2% í fyrstu viðskiptum og stendur í 13,4 krónum þegar fréttin er skrifuð. Markaðsvirði Símans nam 31,9 milljörðum króna við lokun markaða í gær. Heildarvirði vef- og útvarpmiðla Sýnar í viðskiptunum nemur samkvæmt skilmálaskjali 5.250 milljónum króna. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Tekjur miðlanna á árinu 2025 voru um 3 milljarðar króna. Samkvæmt skilmálaskjalinu skuldbinda aðilar sig til þess að vinna að því að undirrita kaupsamning á grundvelli þeirra skilmála sem þar koma fram. Viðskiptin eru háð niðurstöðum áreiðanleikakönnunar, samkomulagi um endanlegan kaupsamning, samþykki stjórna beggja aðila og samþykki viðeigandi eftirlitsaðila.

Share this article