Stjórn Sýnar hefur tekið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna við Símann hf. á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Áætlað er að tekjur rekstrareiningarinnar nemi um 3 milljörðum króna á ársgrundvelli. Heildarvirði (e. enterprise value ) í viðskiptunum nemur samkvæmt skilmálaskjali 5.250 milljónum króna. „Samkvæmt skilmálaskjalinu skuldbinda aðilar sig til þess að vinna að því að undirrita kaupsamning á grundvelli þeirra skilmála sem þar koma fram. Viðskiptin eru háð niðurstöðum áreiðanleikakönnunar, samkomulagi um endanlegan kaupsamning, samþykki stjórna beggja aðila og samþykki viðeigandi eftirlitsaðila,“ segir í tilkynningu Sýnar. Eins og áður hefur komið fram hefur stjórn Sýnar haft framtíðarfyrirkomulag á rekstri fjölmiðlahluta félagsins til skoðunar. „Sala umræddra miðla er liður í stefnumótandi endurskipulagningu rekstrar Sýnar sem miðar að því að einfalda starfsemi félagsins og styrkja rekstrargrundvöll þess til framtíðar. Með því að skerpa áherslur í rekstrinum er markmiðið að tryggja áframhaldandi framúrskarandi þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki og arðbæran rekstur til lengri tíma.“ María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar að vef- og útvarpsmiðlar Sýnar hafi fest sig í sessi sem ómissandi veita frétta og afþreyingar hjá meirihluta landsmanna. Sjá einnig Síminn breytir nafni samstæðunnar „Öflugur mannauður og sterk vörumerki miðlanna falla vel að okkar starfsemi, og við trúum því að sameinað miðlafyrirtæki undir móðurfélaginu Ásum, verði í góðri stöðu til að veita framúrskarandi fjölmiðlaþjónustu í síbreytilegu umhverfi. Með einstaklega vel heppnaðri yfirtöku á Billboard, markvissri uppbyggingu Sjónvarp Símans Premium, og hraðri framþróun auglýsingatækni innan Símans, höfum við mótað traustan grunn til að byggja upp eininguna með góðum árangri,“ segir María Björk.