Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Með ákvörðuninni tekur Ísland þátt í efnislegu máli fyrir dómstólnum í fyrsta sinn. Suður-Afríka fer fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt við skyldur sínar samkvæmt hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gaza, sem hófst í kjölfar árása hryðjuverkasamtakanna Hamas í Ísrael 7. október 2023. Hvað er Hópmorðssáttmáli Sameinuðu þjóðanna? Hópmorðssáttmáli Sameinuðu þjóðanna er frá árinu 1948 og fjallar hann um skyldur ríkja til að fyrirbyggja hópmorð í heiminum. Er ríkjum sem aðild eiga að sáttmálanum skylt að grípa til ráðstafana gegn hópmorði sem og refsa fyrir það og tengda glæpi, t.d. hvatningu til hópmorðs. Ísland var fjórða ríkið til að fullgilda hópmorðssáttmálann árið 1949, en alls hafa 154 ríki gerst aðilar að honum. „Beitum rödd okkar í þágu alþjóðalaga og mannréttinda“ Í tilkynningu utanríkisráðuneytisins segir að yfirlýsing vegna þátttöku Íslands hafi verið lögð fram fyrir dómstólnum í gær. Í henni sé gerð grein fyrir lögfræðilegri afstöðu Íslands. Þar segir að íslensk stjórnvöld hafi fordæmt bæði hryðjuverkaárás Hamas og hernaðaraðgerðir Ísraels, sem og hörmulegt mannúðarástand á Gasa. Um leið hafi verið lögð áhersla á að það sé hlutverk alþjóðlegra dómstóla að skera úr um hvort um hópmorð, sem einnig sé kallað þjóðarmorð, sé að ræða. „Með þátttöku Íslands í máli Suður-Afríku fyrir Alþjóðadómstólnum beitum við rödd okkar í þágu alþjóðalaga og mannréttinda. Og af því megum við vera stolt,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í tilkynningunni. Hún segir að það gildi einu hvar átök geisi í heiminum eða hver sé að verki, alþjóðasamfélaginu beri skylda að leiða brot á alþjóðalögum til lykta fyrir sjálfstæðum og óháðum dómstólum. Ákvörðunin hluti af áherslum Íslands Ákvörðunin um meðalgöngu Íslands framfylgir stefnu sem Alþingi markaði í þingsályktun nr. 1/154, frá 9. nóvember 2023, um afstöðu Íslands vegna átaka fyrir botni Miðjarðarhafs. Þar er þess krafist að alþjóðalögum sé fylgt í einu og öllu, og áréttað að öll brot á alþjóðalögum í stríðinu verði rannsökuð til hlítar. Í tilkynningu utanríkisráðuneytisins segir að á síðasta ári hafi Ísland lagt fram sjálfstæða greinargerð í ráðgefandi álitsmáli fyrir dómstólnum í fyrsta sinn. Það sé liður í vaxandi áherslu Íslands á að beita sér með virkum hætti fyrir reglum þjóðarréttar.