Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Taka þátt í framfylgd alþjóðalaga

Read Full Article →

Ísland tekur þátt í efnislegu máli fyrir dómstólnum í fyrsta sinn. Suður-Afríka fer fram á að Ísrael verði dæmt fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gaza sem brjóti í bága við hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þórdís Ingadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, er sérfræðingur í þjóðarétti. Hún ræddi þýðingu þessa fyrir Ísland í hádegisfréttum RÚV. „Ég held að þetta hafi mikla þýðingu fyrir íslensk stjórnvöld, fyrir Ísland sem smáríki, að taka þátt í framfylgd alþjóðalaga með þessum hætti. Ég held að þetta hafi líka virðisauka fyrir málið, að fá greinargerð frá Íslandi.“ Ísland varð sautjánda ríkið til að taka þátt í málsókninni. Þá vaknar spurningin um hvort það skipti máli hversu mörg og hvaða ríki taka þátt. Þórdís segir að það sé ný þróun að ríki taki þátt í málaferlum með þessum hætti. „Þetta byrjar svolítið með máli Úkraínu gegn Rússlandi þegar 33 ríki fara inn. Í máli Gambíu gegn Mjanmar, sem varðar líka hópmorðssáttmálann, ertu með ellefu ríki, í raun 70 ríki á bak við. Holland var að bætast í hópinn í gær sem er kominn upp í átján, nítján. Ég held að talan skipti ekki öllu máli. Þetta sýnir að þetta er ný leið til að knýja fram efndir á alþjóðalögum. Það er verið að nota Alþjóðadómstólinn í Haag í mjög auknum mæli hvað það varðar. Það er mikilvægt á tímum sem þessum.“ Þórdís gerir ráð fyrir að meðalganga Íslands verði samþykkt og þá fái landið öll gögn málsins. Meðalgönguríki geta lagt fram skýringar sínar og túlkanir á lögum í málaferlum.

Share this article