Verðbólga verður 5,4 prósent í mars, gangi ný spá Greiningardeildar Landsbankans eftir. Hún eykst samkvæmt því milli mánaða þar sem hún var 5,2 prósent í febrúar. Greiningardeildin vísar einkum til hækkana á eldsneytisverði þegar kemur að aukinni verðbólgu. Óvissa um hversu langt stríðið í Mið-Austurlöndum verður veldur óvissu um það hversu lengi eldsneytisverð ýtir undir verðbólgu. Hægt er að segja kjarasamningum upp ef verðbólga fer yfir 4,7 prósent í ágúst. Greiningardeildin segir auknar líkur á því að forsendur kjarasamninga haldi ekki. Peningastefnunefnd Seðlabankans ræður ráðum sínum og tilkynnir næstu stýrivaxtaákvörðun sína á miðvikudag. Greiningardeild Landsbankans spáir því að þeir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Það er samhljóða spá Greiningardeildar Íslandsbanka í gær.