Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spá því að verðbólga fari upp í 5,5%

Read Full Article →

Greining Íslandsbanka spáir því að verðbólga fari úr 5,2% í 5,5% milli febrúar og mars. Til samanburðar var verðbólga síðast meiri í ágúst 2024. Verðbólguspáin gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,65% í mars. „Hækkunin skýrist að mestu annars vegar af hækkun flugverðs vegna tímasetningar páska og hins vegar af hækkun eldsneytisverðs,“ segir í grein á vef Íslandsbanka. Gæti verið komin niður í 3,7% í lok árs Gert er ráð fyrir að liðurinn flutningar muni hafa mest áhrif á vísitöluna í mars og hækka um 2%. Spá bankans gerir ráð fyrir 9,8% hækkun flugverðs. Þá hækkaði eldsneytisverð um rúmlega 5% í mars frá fyrri mánuði samkvæmt verðmælingu Greiningar. Sjá einnig Spáir vaxtahækkun í næstu viku Greiningardeildin gerir ráð fyrir að verðbólga verði 4,9% í apríl og maí og hjaðni svo niður í 4,5% í júní. „Við gerum jafnframt ráð fyrir áframhaldandi hjöðnun á seinni hluta ársins og samkvæmt spánni gæti ársverðbólga verið komin niður í 3,7% í árslok.“ Verði rétt undir viðmiðum forsenduákvæðisins Samkvæmt spánni verður verðbólga rétt undir viðmiðum í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, en greiningardeildin segir að lítið þurfi út af að bregða til að hún mælist yfir þeim. Forsendur fyrir endurskoðun kjarasamninga fela í sér að ársverðbólga mælist yfir 4,7% í ágústmælingunni eða að verðbólga frá mars-ágúst verði yfir 4,4% miðað við árshraða.

Share this article