Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,2% í maí og að verðbólga verði því óbreytt frá fyrri mánuði í 5,2%. Bráðabirgðaspá bankans gerir ráð fyrir að verðbólga hjaðni lítillega í sumar og muni mælast 5,1% í ágúst. Greiningardeildin segir að samkvæmt bráðabirgðaspánni sé því líklegt að forsenduákvæðið í almennum kjarasamningum virkist. Í verðbólguspánni segir að helstu hækkunarvaldar í maímánuði séu reiknuð húsaleiga auk flugfargjalda. Greiningardeildin gerir ráð fyrir 6,4% hækkun flugfargjalda í mánuðinum vegna árstíðarbundinna áhrifa og að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5%. Á móti vegi lækkun eldsneytisverðs í kjölfar aðgerða stjórnvalda sem tóku gildi í byrjun maí. Gert er ráð fyrir 7,1% lækkun eldsneytisverðs í maí. Verðbólga hjaðnaði úr 5,4% í 5,2% í apríl. Greining Íslandsbanka segir að það sem kom mest á óvart í þeirri mælingu hafi verið að innfluttar vörur hækkuðu lítið í verði og að undirliggjandi verðbólga miðað við allar kjarnavísitölur minnkaði á ársgrundvelli. „Miðað við verðmælingar okkar virðist þetta einnig vera staðan í maí, innfluttar vörur hækka lítið í verði. Þrátt fyrir það gerum við ráð fyrir auknum innfluttum verðbólguþrýstingi á næstu mánuðum í ljósi aðstæðna á alþjóðamörkuðum.“ Útlit fyrir að forsenduákvæðið muni virkjast Bráðabirgðaspá greiningardeildarinnar gerir ráð fyrir að verðbólga verði 5,0% í júní, 4,9% í júlí og 5,1% í ágúst. „Ágústmælingin skiptir miklu máli í þessu samhengi vegna ákvæðis í kjarasamningum sem kveður á um endurskoðun samninga og mögulega uppsögn þeirra frá og með nóvember næstkomandi ef verðbólga mælist yfir 4,7%. Samkvæmt bráðabirgðaspá okkar er því líklegt að þetta ákvæði virkist.“ Margt þyrfti að ganga upp til þess að verðbólga mældist undir viðmiðunarmörkum ákvæðisins. Greiningardeildin segir að til þess þyrftu einhverjir liðir vísitölunnar væntanlega að hækka minna en spá sín geri ráð fyrir. „Til svo skamms tíma gæti það helst gerst ef eldsneytisverð myndi lækka hratt, reiknuð húsaleiga haldast í skefjum og hækkun innfluttra vara yrði lítil fram að mælingunni.“