Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga muni hækka úr 5,2% í 5,4% í mars. Gert er ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,55% á milli mánaða í mars. Bráðabirgðaspá greiningardeildarinnar gerir ráð fyrir að verðbólga verði 5,2% í apríl, 4,9% í maí og 4,6% í júní. Varað er við því að auknar líkur séu á því að forsenduákvæði kjarasamningum á almennum vinnumarkaði haldi ekki. Hagfræðideildin hefur fært upp spá sína fyrir marsmánuð en hún gerði áður ráð fyrir að verðbólga verði 5,1% í mánuðinum. „Hærra eldsneytisverð, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum, skýrir að stærstum hluta þá hækkun verðbólgu á milli mánaða sem við spáum. Óljóst er hversu lengi átökin munu standa yfir og hversu langvinn áhrifin á verðbólgu hér á landi verða,“ segir í grein á vef Landsbankans. Hækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu hafi leitt til þess að bensínverð á dælu hér á landi hefur hækkað sem muni hafa bein áhrif á verðmælingar í mars. Hærra eldsneytisverð hafi áhrif á kostnað við nær alla framleiðslu og þjónustu. Mikið í húfi Hagfræðideildin segir mikið vera undir í verðbólgumælingum næstu mánaða en forsendur í kjarasamingum á almennum vinnumarkaði byggja á að verðbólga mælist undir 4,7% í ágúst, eða að hún mælist að meðaltali undir 4,4% sex mánuði þar á undan. „Auknar líkur eru á því að þær forsendur haldi ekki,“ segir í greininni. „Gera má ráð fyrir því að sjálfur ágústmánuður líti ekki vel út í verðbólgumælingum. Í fyrsta lagi verður almyrkvi á sólu í ágúst sem mun sjást frá Íslandi og mikil eftirspurn er eftir því að berja hann augum. Það má gera ráð fyrir áhrifum þess á verðlag í ágúst, meðal annars á flugfargjöld og verð á gistiþjónustu.“ Sjá einnig Hækka vexti ef forsenduákvæðið verður virkjað Bankinn segir að áhrifin af sólmyrkvanum ættu þó aðeins að vara í ágúst og verð á flugfargjöldum og gistingu ætti að mælast eðlilega næstu mánuði á eftir. Í ágúst komi einnig hækkun skráningagjalda í opinberum háskólum inn í mælingar, úr 75 þúsund í 100 þúsund krónur, og mun því hafa áhrif til hækkunar þann mánuð.