Greiningardeild Landsbankans spáir 5,4% verðbólgu í mars sem er 0,2 prósentustigum hærra en í febrúar. Hærra eldsneytisverð, vegna átakanna í Mið-Austurlöndum, skýrir hækkunina að stærstum hluta. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir óljóst hve langvinn áhrif átakanna í Mið-Austurlöndum verða á þróun verðbólgu hér á landi. Fleiri þættir komi einnig til. Spáir hækkun stýrivaxta í næstu viku Una segir að innlendur eftirspurnarþrýstingur mælist mikill og að verðbólguvæntingar hafi hækkað. „Og það getur leitt til þess að það verði bara nokkuð mikil verðbólga heilt yfir. Við sjáum hana ekki fara svona niður eins og spár voru upphaflega að gera ráð fyrir.“ Greiningardeild Landsbankans spáir því að Seðlabankinn hækki stýrivexti um 0,25 prósentustig í næstu viku vegna hækkunar verðbólgu. Forsendur í kjarasamingum á almennum vinnumarkaði byggjast á því að verðbólga sé undir 4,7% í ágúst, eða að hún mælist að meðaltali undir 4,4% sex mánuði þar á undan. Una telur auknar líkur á að þær forsendur haldi ekki. Stórir atburðir séu framundan sem muni ýta undir aukna verðbólgu. „Það er til að mynda sólmyrkvinn hérna í ágúst. Hann mun laða ferðamenn til landsins og það má alveg gera ráð fyrir því að það svona auki kannski aðeins verðbólguþrýstinginn.“ Teljið þið að það geti skapast heimild til að segja upp kjarasamningum á stórum hluta vinnumarkaðarins? „Útlitið er þannig að sú heimild gæti alveg skapast.“