Greiningardeild Landsbankans spáir því að ársverðbólga muni hækka úr 5,4 prósentum í 5,5 prósent í apríl. Samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu bankans er gert ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 1,03 prósent milli mánaða í apríl, áður en verðbólga taki aftur að hjaðna og mælist 5,2 prósent í maí og 4,9 prósent í júní. Í skýrslunni kemur fram að vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55 prósent í mars og að ársverðbólga fór þá úr 5,2 prósentum í 5,4 prósent, í samræmi við spá Landsbankans. Verðbólgan hefur því verið yfir efri vikmörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans fjóra mánuði í röð og ekki mælst svo há síðan í september 2024. Greiningardeildin segir að í mars hafi reiknuð húsaleiga og verð á fötum og skóm hækkað minna en búist var við, en á móti hafi matarkarfan, bensín, umhirða og félagsþjónusta hækkað meira en spáð var. Sérstaklega er bent á að matarkarfan hafi hækkað þriðja mánuðinn í röð meira en bankinn hafði gert ráð fyrir. Í skýrslunni segir einnig að framlag innfluttra vara til ársverðbólgu hafi aukist nokkuð milli mánaða, sem skýrist að mestu af hækkandi bensínverði vegna stríðsátaka við Persaflóa. Á sama tíma hafi framlag húsnæðis til ársverðbólgu dregist saman, bæði vegna hóflegrar hækkunar reiknaðrar húsaleigu í mars og þess að stór hækkunarmánuður í húsnæðisliðnum hafi dottið út úr ársgrunninum. Verðbólguspá Landsbankans kemur skömmu eftir að peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig. Opinber þjónusta hefur hækkað verulega. Á sama tíma hafi framlag húsnæðis til ársverðbólgu dregist saman, bæði vegna hóflegrar hækkunar reiknaðrar húsaleigu í mars og þess að stór hækkunarmánuður í húsnæðisliðnum hafi dottið út úr ársgrunninum. Verðbólguspá Landsbankans kemur skömmu eftir að peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig. Í skýrslu bankans er bent á að tónn nefndarinnar hafi verið mun harðari en í febrúar og að framsýn leiðsögn hennar hafi verið skýr um að nefndin sé tilbúin til að herða taumhald peningastefnunnar frekar ef þess gerist þörf til að tryggja hjöðnun verðbólgu. Meginvextir Seðlabankans standa nú í 7,5 prósentum. Samhliða þessu hefur verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hækkað í mars, bæði til tveggja og fimm ára. Sjá einnig Skuldabréfamarkaðurinn sendir SÍ óþægileg skilaboð Meðaltal helstu mælikvarða á verðbólguvæntingar hafi verið 4,0 prósent í mars og að raunstýrivextir miðað við verðbólguvæntingar hafi verið 3,3 prósent. Niðurstaða greiningardeildarinnar er því sú að verðbólgan eigi enn eftir að taka stuttan kipp upp á við í apríl áður en hún fer aftur lækkandi á vormánuðum, að því gefnu að spá bankans gangi eftir. Sjá einnig „Einfalt ráð að lækka virðisaukaskatt á matvæli“