Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Eykur frekar líkur á því að minna skref verði tekið“

Read Full Article →

Verðbólga hjaðnaði í apríl og mælist nú 5,2%, sam­kvæmt ný­birtum tölum Hag­stofunnar. Vísi­tala neyslu­verðs hækkaði um 0,81% milli mánaða, en verðbólga lækkaði engu að síður úr 5,4% í 5,2%. Greiningar­deild Lands­bankans hafði spáð því að verðbólga myndi hækka í 5,5% í apríl. Mestu munaði um að flug­far­gjöld til út­landa hækkuðu mun minna en bankinn hafði gert ráð fyrir. Bankinn segir mælinguna auka líkur á því að Seðla­bankinn taki minna hækkunar­skref í maí. „Við gerum enn ráð fyrir því að stýri­vextir verði hækkaðir í maí en þessi mæling eykur frekar líkur á því að minna skref verði tekið. Í ný­legri hag­spá gerðum við ráð fyrir 0,5 pró­sentu­stiga stýri­vaxta­hækkun í maí en teljum nú auknar líkur á 0,25 pró­sentu­stiga hækkun,“ segir í Hagsjá bankans. Elds­neytis­verð hafði mest áhrif til hækkunar á vísitölunni í apríl. Verð á bensíni og dísilolíu hækkaði saman­lagt um rúm­lega 14% milli mánaða. Flug­far­gjöld til út­landa hækkuðu hins vegar um 6,1% en Lands­bankinn hafði spáð 16,7% hækkun. Matar­karfan og föt og skór lækkuðu lítil­lega í mánuðinum. Undir­liggjandi þrýstingur virðist minnka Í Hag­s­já Lands­bankans segir að kjarna­vísitölur, sem eiga að mæla undir­liggjandi verðbólguþrýsting, hafi lækkað lítil­lega í apríl eftir að hafa staðið í stað í mars. Það bendi frekar til þess að undir­liggjandi verðbólguþrýstingur sé að minnka en að aukast. Bankinn segir það í samræmi við ný­lega langtíma­verðbólgu­spá sína, þar sem gert var ráð fyrir að verðbólga næði há­marki í apríl og færi svo lækkandi. Munurinn sé hug­san­lega sá að verðbólgan sé að hjaðna ör­lítið hraðar en bankinn hafði vænst, þótt vara­samt sé að lesa of mikið í eina mælingu. Sjá einnig Verðbólga úr 5,4% í 5,2% Flug­far­gjöld hækkuðu minna en í fyrra Sam­setning verðbólgunnar breyttist í apríl. Fram­lag inn­fluttra vara til ár­s­verðbólgu jókst mest, sem skýrist nánast al­farið af hækkun bensín­verðs. Aðrir liðir höfðu hins vegar áhrif til lækkunar. Lands­bankinn bendir á að flug­far­gjöld til út­landa hafi hækkað tölu­vert minna en á sama tíma í fyrra. Það kunni að skýrast af því að páskarnir voru af­staðnir nokkru fyrir verðmælingar­daga Hag­stofunnar. Flug­far­gjöld voru 8% hærri en í apríl í fyrra, en í mars voru þau um 23% hærri en í sama mánuði árið áður. Reiknuð húsa­leiga hækkaði um 0,8% í apríl og hækkaði þar með meira en Lands­bankinn hafði spáð í fyrsta sinn í fjóra mánuði. Þrátt fyrir það gerir bankinn áfram ráð fyrir hægari hækkunum næstu mánuði, enda hafi hægt tölu­vert á bæði íbúða­verði og leigu­verði undan­farið. Spá 4,8% verðbólgu í maí Lands­bankinn spáir því að vísi­tala neyslu­verðs lækki um 0,21% í maí, hækki um 0,67% í júní og um 0,33% í júlí. Gangi sú spá eftir verður ár­s­verðbólga 4,8% í maí, 4,6% í júní og 4,7% í júlí. Bankinn segir að þótt aprílmælingin hafi verið lægri en búist var við breytist spáin fyrir næstu mánuði lítið. Það skýrist meðal annars af því að bankinn hækkar spá sína um bensín­verð vegna hærra heims­markaðsverðs á olíu. Greiningar­deildin gerir enn ráð fyrir því að stýri­vextir verði hækkaðir í maí. Hins vegar telji hún nú auknar líkur á 0,25 pró­sentu­stiga hækkun, í stað 0,5 pró­sentu­stiga hækkunar sem bankinn gerði ráð fyrir í ný­legri hag­spá.

Share this article