Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga úr 5,4% í 5,2%

Read Full Article →

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,81% á milli mars og apríl og hefur nú hækkað um 5,2% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Ársverðbólga dróst saman um 0,2 prósentustig frá fyrri mánuði þegar hún mældist 5,4%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,85% milli mánaða og hefur nú hækkað um 4,8% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis dróst saman um 0,1 prósentustig frá marsmánuði þegar hún nam 4,9%. Í frétt á vef Hagstofunnar segir að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, svokölluð reiknuð húsaleiga, hafi aukist um 0,8% milli mánaða, verð á bensíni hækkaði um 12,1%, verð á dísel hækkaði um 19,7% og verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 6,1%. Spár greiningardeilda bankanna voru ólíkar fyrir aprílmælinguna. Greining Íslandsbanka hafði spáð 0,7% hækkun vísitölunnar og að verðbólga myndi mælast 5,1%. Hagfræðideild Landsbankans spáði 1,05% hækkun vísitölunnar og að verðbólga færi upp í 5,5%. Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 20. maí næstkomandi og er þetta því síðasta verðbólgumælingin fyrir næstu vaxtaákvörðun. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 25 punkta, upp í 7,5%, við síðustu vaxtaákvörðun þann 18. mars og gaf til kynna að vextir gætu hækkað frekar.

Share this article