Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94% á milli janúar og febrúar og hefur nú hækkað um 5,2% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Ársverðbólgan hélst óbreytt í 5,2% og var talsvert yfir spám greiningardeilda bankanna. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,09% milli mánaða og hefur nú hækkað um 4,5% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis hélst óbreytt í 4,5%. Í frétt á vef Hagstofunnar segir að vetrarútsölur séu víða gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,1% milli mánaða og verð á húsbúnaði, heimilistækjum o.fl. hækkaði um 5,4%. Verð á mat og óáfengum drykkjum hækkaði um 0,9% milli mánaða, gjöld vegna vatnsveitu, sorphirðu og fráveitu hækkuðu um 4,3% og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 6,8%. Verð á dísel lækkaði um 5,6% og verð á bensíni lækkaði um 6,0%. „Við sannprófun gagna fyrir febrúar kom í ljós að rangt eldsneytisverð var skráð hjá einum smásöluaðila í janúar. Lækkun á bensíni og dísel í febrúar er að miklu leyti vegna uppfærslu þessarar skráningar.“ Spáðu 4,9-5,0% verðbólgu Greiningardeildir bankanna höfðu spáð því að verðbólga myndi hjaðna milli mánaða og fara niður í 4,9-5%. Greining Íslandsbanka og hagfræðideild Landsbankans spáðu 0,64-0,7% hækkun vísitölu neysluverðs í febrúar og að verðbólga yrði því 4,9%. Greiningardeild Arion banka spáði 0,73% hækkun vísitölunnar og að verðbólga yrði 5,0%. Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 18. mars næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans hélt stýrivöxtum óbreyttum í 7,25% við síðustu vaxtaákvörðun þann 4. febrúar síðastliðinn.