Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga upp í 5,4%

Read Full Article →

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% á milli febrúar og mars og hefur nú hækkað um 5,4% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Ársverðbólga jókst um 0,2 prósentustig frá fyrri mánuði þegar hún mældist 5,2%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,67% milli mánaða og hefur nú hækkað um 4,9% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis jókst um 0,4 prósentustig frá febrúarmánuði þegar hún nam 4,5%. Í frétt á vef Hagstofunnar segir að verð á mat og óáfengum drykkjum hafi hækkað um 0,7% milli mánaða, verð á bensíni hækkaði um 5,8% og verð á dísel hækkaði um 6,9%. Spáðu 5,4-5,5% verðbólgu í mars Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans höfðu spáð því að verðbólgan myndi aukast og vera á bilinu 5,4-5,5%. Greining Íslandsbanka haði spáð því að VNV myndi hækka um 0,65% og að verðbólga yrði 5,5% í mars. Hagfræðideild Landsbankans spáði 0,55% hækkun vísitölunnar og að verðbólga yrði 5,4%. Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 20. maí næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 25 punkta, upp í 7,5%, við síðustu vaxtaákvörðun í síðustu viku og gaf til kynna að vextir gætu hækkað frekar.

Share this article