Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.3.2026 | 18:05 Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu Dómurinn sýknaði ríkið af miskabótakröfu aðstandenda Heklu Lindar. mbl.is/Ólafur Árdal Setja bókamerki Íslenska ríkið hefur verið sýknað af bótakröfu aðstandenda ungrar konu sem lést í kjölfar afskipta lögreglu af henni í apríl 2019, þar sem hún var í geðrofsástandi eftir neyslu fíkniefna. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem birtur var í vikunni. Foreldrar hennar og bróðir töldu íslenska ríkið bótaskylt vegna þess að Hekla Lind Jónsdóttir, sem þá var 25 ára, hefði látið lífið í höndum lögreglu. Lýsa þau atvikum þannig að lögreglumennirnir hefðu haldið Heklu Lind niðri, hún liggjandi á maganum, og þrýst hnjám sínum á herðablaðasvæði hennar. Þeir hefðu einnig barið hana með lögreglukylfum og veitt henni ofsafengin högg. Hekla Lind hefði þá farið í hjartastopp sem leitt hefði til andláts hennar. Lögreglumennirnir hefðu reynt endurlífgun án árangurs á vettvangi og Hekla Lind verið úrskurðuð látin á sjúkrahúsi nokkrum klukkustundum síðar. Gæti nægt til að koma af stað banvænni hjartsláttartruflun Aðstandendur Heklu Lindar vísa í stefnunni til niðurstöðu réttarmeinafræðingsins sem annaðist krufningu hennar. Þar hefði komið fram að þegar átökin við lögreglu hefðu staðið yfir hefði hún verið með svonefnt óráðsástandsheilkenni. Aukið álag við átökin hefði aukið efnaskiptaröskun í líkama hennar og ofhitnun, auk þess sem þvinguð lega hennar á grúfu með þrýsting á brjóstkassa hennar gæti hafa hamlað öndunargetu hennar. Þá hefði komið fram í krufningarskýrslunni að þessir tveir þættir gætu nægt til að koma af stað skyndilegri banvænni hjartsláttartruflun. Með viðbótaráliti réttarmeinafræðingsins hefði hann fullyrt að aðgerðir lögreglu hefðu átt umtalsverðan þátt í andláti Heklu Lindar. Hann hefði staðfest að líkamleg átök við lögreglu hefðu leitt til banvænnar efnaskiptaröskunar á sjálfvirkri starfsemi hjartans, auk þess sem festing Heklu Lindar við handtöku hefði haft áhrif á öndunargetu hennar. Frétt af mbl.is Geðhjálp kallar eftir endurskoðun á verkferlum Ekki fyrirsjáanleg afleiðing af afskiptunum Héraðsdómur Reykjavíkur telur lögreglumennina tvo ekki hafa getað séð fyrir að Hekla Lind væri í svo viðkvæmu ástandi að afskipti þeirra hefðu getað leitt til dauða hennar. Þá taldi sérfróður meðdómsmaður lýsingar aðstandenda um ofsafengnar barsmíðar lögreglumannanna með kylfu ekki eiga sér stoð í gögnum málsins. Krufningin benti ekki heldur til þess að óhóflegu ofbeldi hefði verið beitt við handtökuna. Átta dögum áður en Hekla Lind lést höfðu sömu lögreglumenn haft afskipti af henni. Þá var hún einnig í geðrofi í tengslum við fíkniefnaneyslu. Því hafði verið haldið fram í sjúkraskrá hennar að þrjá lögreglumenn hefði þurft til þess að handtaka hana. Þá vísaði dómstóllinn til þess að afar sjaldgæft væri að fólk létist skyndilega í tökum lögreglu. Þannig hefði andlát Heklu Lindar ekki verið fyrirsjáanleg afleiðing af afskiptunum. Því sýknaði dómurinn ríkið af miskabótakröfu aðstandenda Heklu Lindar. Þeir fengu gjafsókn í málinu og greiðast því 7 milljónir króna úr ríkissjóði. Frétt af mbl.is Leggur til gjafsókn í máli þar sem ung kona lést Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hvasst og blint: Færð getur spillst Skrifaði undir þriggja ára samning í Svíþjóð Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu Viðskiptaráð kynni sér heilbrigðisþjónustuna Þrjú snjóflóð vestur á fjörðum Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Ferðamenn lentu á kafi í vatni Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Þorkell Jóelsson Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Hvasst og blint: Færð getur spillst Skrifaði undir þriggja ára samning í Svíþjóð Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu Viðskiptaráð kynni sér heilbrigðisþjónustuna Þrjú snjóflóð vestur á fjörðum Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Engar ákvarðanir teknar um sjónvarpshlutann Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Vatnsból í hættumat „Ósatt, bara lygar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Þorkell Jóelsson Lögreglan leitar að 14 ára stelpu

Share this article