Fyrsta skóflustungan var tekin að nýrri björgunarmiðstöð á Borg í dag. Hún mun hýsa Hjálparsveitina Tintron og Brunavarnir Árnessýslu. Miðstöðin er samvinnuverkefni Tintrons, slökkviliðsins og Grímsnes- og Grafningshrepps. Húsnæðið verður í heildina 1135 fermetrar. Þetta er í fyrsta sinn sem slökkvistöð verður á Borg, sem tryggir skjótara viðbragð og aukið öryggi. Viðbragðstími gæti styst um 20 mínútur í bruna eða slysum „Ég hugsa að við bestu aðstæður, segjum sem svo að hér verði bruni eða slys við Borg, þá getur viðbragðstíminn styst upp undir 20 mínútur,“ segir Pétur Pétursson slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu. „Það gerist ýmislegt bæði í eldi og á slysavettvangi á 20 mínútum. Þannig að þetta mun gjörbreyta öllu fyrir okkur,“ segir hann. Miðstöðin er sé mikið öryggismál. „Já, bæði fyrir fyrir vegfarendur og íbúa“, segir Pétur. Átta ár síðan núverandi húsnæði varð of lítið fyrir Tintron Jóhannes Þórólfur Guðmundsson formaður Hjálparsveitarinnar Tintrons segir það hafa verið löngu tímabært að hjálparsveitin myndi stækka við sig. Hann vonast til að húsnæðið verði risið og afhent fokhelt í lok þessa árs. „Þetta hefur töluverða þýðingu fyrir okkur. Við höfum sprengt utan af okkur núverandi húsnæði - fyrir um það bil átta árum síðan. Það hefur aukist tækjabúnaður og sveitin er að eflast. Það er mikið af tækjum sem standa úti hjá okkur,“ segir Jóhannes.