Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.3.2026 | 8:35 Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Framkvæmdir við Brákarborg við Kleppsveg hafa staðið yfir lengi og kostnaður orðinn á fjórða milljarð króna. Eru borgaryfirvöld sökuð um óráðsíu og vandræðagang. Borgin fékk þó „Grænu skófluna“ fyrir vikið. mbl.is/sisi Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Alls eru sex grunnskólabyggingar Reykjavíkurborgar lokaðar að hluta eða eru í slæmu ástandi og ekki er staðan betri þegar kemur að leikskólahúsnæði, en þar er um að ræða 14 byggingar í þessari stöðu. Þetta má ráða af svari sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs borgarinnar við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í ráðinu. Í fyrirspurninni var óskað eftir yfirliti yfir þá grunn- og leikskóla sem lokaðir verða á næstunni vegna framkvæmda við viðhald, sem og hversu lengi ætlað er að lokunin standi yfir. Sex grunnskólar Grunnskólarnir sex sem hér um ræðir eru Hagaskóli, þar sem endurnýjun bygginga er sögð í hönnun og gert ráð fyrir að farið verði í útboð fljótlega. Börnunum er nú kennt í færanlegum húseiningum á skólalóðinni. Nemendur Hólabrekkuskóla hafa verið á hrakhólum, en um sl. áramót var kennsla flutt úr Korpuskóla í færanlegar einingar á lóð Hólabrekkuskóla. Unnið er að endurnýjun annars hluta skólabyggingarinnar og gert ráð fyrir að hún verði tilbúin næsta vetur. Þá verður farið í endurnýjun hins hluta byggingarinnar. Í Langholtsskóla háttar þannig til að íþróttahúsið hefur verið lokað frá sl. vori vegna myglu. Verið er að skoða möguleikana í stöðunni. Þá eru áformaðar áfangaskiptar framkvæmdir við skólabygginguna sjálfa. Loka þarf annarri álmu Rimaskóla næsta haust vegna endurnýjunar á loftræstikerfi o.fl. og á framkvæmdum að ljúka um næstu áramót. Börnunum verður á meðan kennt í anddyri, í hluta matsalar og hluta bókasafns, en einnig á að nýta frístundaheimili og félagsmiðstöð til kennslu. Hluta af Ölduselsskóla var lokað vegna myglu í fyrra og skólastarf flutt að hluta í Seljakirkju. Ráð er fyrir því gert að færanlegum skólastofum verði komið fyrir á skólalóðinni í vor. Enn er þó þarfagreining fyrir áframhaldandi viðgerðir á húsinu í gangi. Viðvarandi vandamál hafa verið í Laugarnesskóla vegna myglu, en ætlunin er að nemendum verði kennt í „skólaþorpi“ á bílastæði KSÍ í Laugardal og stefnt að því að fyrsti hluti þess verði tekinn í notkun í vor. Þó verða enn um sinn nýttar færanlegar skólastofur á skólalóðinni. 14 leikskólar í vanda Vandræðin í leikskólum borgarinnar virðast vera viðvarandi. Þannig er verið að endurgera húsnæði leikskólans Árborgar sem ætlunin er að lokið verði næsta haust. Á meðan hefur börnunum verið komið fyrir í Selásskóla. Þá hefur verið ákveðið að flytja leikskólann Arnarborg í húsnæði í Ármúla 28-30 á meðan verið er að laga þak byggingarinnar, en rakavarnarlag þar er rifið og agnir af glerull eiga greiða leið inn í leikskólann. Þá virðist hrakfallasaga Brákarborgar engan enda ætla að taka, framkvæmdir hafa enn tafist og nýjasta áætlunin er að þar hefjist starfsemi nú í vor. Þá eru í svarinu nefnd til sögunnar margvísleg vandamál í eftirtöldum leikskólum borgarinnar: Hagaborg, Hálsaskógur, Hlíð-Sólhlíð, Kvistaborg, Laugasól, Miðborg-Barónsborg, Múlaborg, Sunnuás, Sæborg, Vinagerði og Ægisborg. Í tilviki Sæborgar er gert ráð fyrir að húsnæði leikskólans verði tilbúið um áramót 2028/2029, en hvað Sunnuás varðar þá á húsnæði skólans að vera tilbúið um áramótin 2030/2031. Nefna má að áætlanir borgarinnar hvað tímasetningar varðar hafa oftsinnis ekki gengið eftir. Langur framkvæmdatími Í bókun Mörtu Guðjónsdóttur fulltrúa í skóla- og frístundaráði segir m.a. að furðu veki hvað framkvæmdir standi lengi yfir. T.a.m. hafi leikskólinn Árborg í Árbæjarhverfi verið lokaður frá 2022 og ekkert unnið við húsnæðið í tvö ár. Þá hafi Hagaborg og Grandaborg verið meira og minna lokaðir frá haustinu 2021, þar til þeir voru opnaðir nýlega. Þá er nefnd óráðsía og vandræðagangur við Brákarborg, þar sem kostnaður sé kominn í á fjórða milljarð króna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Svara Trump fullum hálsi Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Norðmaðurinn ótrúlegi í veseni og á spítala 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spá hækkun vaxta og verðbólgu Engar ákvarðanir teknar um sjónvarpshlutann Síminn að kaupa miðla Sýnar Vopnaður hnífi eftir rán í verslun Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Andlát: Þórir Einarsson Flytur mál fyrir Hæstarétti Holtavörðuheiði er lokuð Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Færð getur spillst víða í nótt Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Einstakar haglabyssur sýndar um helgina Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Svara Trump fullum hálsi Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Norðmaðurinn ótrúlegi í veseni og á spítala 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spá hækkun vaxta og verðbólgu Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Af hverju var dómurinn ómerktur? Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Andlát: Þórir Einarsson Flytur mál fyrir Hæstarétti Holtavörðuheiði er lokuð Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Færð getur spillst víða í nótt Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna Einstakar haglabyssur sýndar um helgina Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu

Share this article