Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vettvangur sem skiptir máli

Read Full Article →

Elsa Giljan Kristjánsdóttir hefur verið sýningarstjóri Verk og vit frá upphafi og leitt sýninguna í tvo áratugi í gegnum þróun, vöxt og umbreytingar í takt við breytingar í mannvirkja- og byggingariðnaði. Nú er heildarmynd sýningarsvæðisins farin að skýrast fyrir Verk og vit 2026, sem hefur fest sig í sessi sem einn mikilvægasti fundarstaður greinarinnar. „Verk og vit gegnir mikilvægu hlutverki fyrir mannvirkja- og byggingariðnaðinn. Sýningin er hlutlaus vettvangur þar sem sýnendur og gestir mætast,“ segir Elsa. „Þar koma saman ólíkir fagaðilar úr ólíkum áttum, miðla þekkingu og sjá hvernig þróun og nýsköpun birtast í framkvæmd. Það myndast ákveðin orka og samheldni í salnum þar sem hugmyndir, tengsl, lausnir og mikilvægar umræður fara fram.“ Sýnendur leggja mikinn metnað í sýninguna Sýningar af þessu tagi eru flóknar í framkvæmd að sögn Elsu. Undirbúningur hverrar sýningar er umfangsmikill og að baki honum liggur margra mánaða ferli – bæði fyrir skipuleggjendur og sýnendur. Skipulag, samhæfing, hönnun sýningar-rýma, tæknimál, öryggi og aðgengi – allt þarf þetta að ganga upp og virka. Hver sýning endurspeglar á hverjum tíma stöðu markaðarins, strauma og áherslur í greininni. „Nú er heildarmyndin farin að skýrast og ég get fullvissað gesti um að þeir mega búast við eftirminnilegu sjónarspili og faglegri framsetningu í hæsta gæðaflokki – eins og endranær. En það verður jafnframt að viðurkennast að enginn veit nákvæmlega hvaða svip hver sýning tekur fyrr en dyrnar opnast gestum. Sýnendur eru jafnan ótrúlega úrræðagóðir og leggja metnað í að bæta við þessu litla extra sem lyftir sýningarrýmunum þeirra upp og gerir upplifunina bæði meira lifandi og eftirminnilega,“ segir hún. Yfir 100 sýnendur úr ólíkum greinum samgöngu-, mannvirkja- og byggingariðnaðarins koma saman á Verk og vit sem fer fram dagana 19.-22. mars nk.. Faglegt samtal Á tuttugu árum hefur Verk og vit þróast í takt við mannvirkja- og byggingariðnaðinn sjálfan. Áherslur hafa breyst og framsetning fyrirtækja orðið markvissari. Þar sem áður var meiri áhersla á beina kynningu og sölumennsku er í dag lögð ríkari áhersla á fræðslu, faglegt samtal og heildstæða nálgun. „Fyrirtæki undirbúa sig með öðrum hætti en áður,“ segir Elsa. „Þau skilgreina markmið sín, huga að því hvernig þau vilja koma þekkingu sinni á framfæri og leggja áherslu á eftirfylgni. Sýning á borð við Verk og vit er ekki endapunktur heldur upphaf samskipta sem þróast áfram í verkefni og samstarf.“ Þessi þróun endurspeglar breytt hlutverk sýninga almennt. Í stað þess að vera eingöngu vettvangur fyrir kynningu vara eru þær orðnar staður þar sem fyrirtæki móta ímynd sína, sýna fram á sérþekkingu og taka þátt í faglegri umræðu um framtíð iðnaðarins. Spegill iðnaðarins Dagana 19.–22. mars 2026 fer Verk og vit fram í Laugardalshöll. Þar koma saman yfir 100 sýnendur úr ólíkum greinum samgöngu-, mannvirkja- og byggingariðnaðarins. Sýningin hefur í gegnum tíðina endurspeglað stöðu og áherslur greinarinnar hverju sinni. Í ár má greina aukna sýnileika stafrænnar tækni og verkfræðilegra lausna. Áhersla á sjálfbærni, skilvirkni og aukið samstarf er sýnileg bæði í framsetningu fyrirtækja og þeim umræðum sem fara fram á sýningunni. „Verk og vit sýnir ekki aðeins hvað er til staðar á markaðnum í dag, heldur hvaða stefnu fyrirtæki eru að taka,“ segir Elsa. „Þar má sjá hvernig tæknin er nýtt og hvernig samstarf milli ólíkra aðila er að þróast.“ Vídd og miðlun þekkingar Á undanförnum árum hefur þátttaka erlendra fyrirtækja og gesta aukist, einkum frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Sameiginlegar áskoranir í mannvirkjagerð, svo sem veðurfarsleg skilyrði og kröfur um endingargóðar lausnir, skapa grundvöll fyrir miðlun þekkingar yfir landamæri. Alþjóðleg vídd styrkir umræðuna og setur íslenskan iðnað í stærra samhengi. Hún undirstrikar jafnframt að þær breytingar sem nú eiga sér stað eru hluti af víðtækari þróun sem snertir greinina á alþjóðavísu. Fangar 20 ára sögu Verk og vit var fyrst haldin fyrir tuttugu árum og hefur að jafnaði farið fram annað hvert ár. Á þeim tíma hefur sýningin gengið í gegnum ólík tímabil í efnahagslífinu og séð bæði uppsveiflu og samdrátt. Hún hefur þó haldið stöðu sinni sem sameiginlegur fundarstaður iðnaðarins. Tuttugu ár marka ekki aðeins afmæli heldur staðfesta þá stöðu og það traust sem hefur byggst upp í kringum sýninguna. Á þeim tíma hefur hún þróast samhliða iðnaðinum og lagað sig að breyttum aðstæðum. „Metnaðurinn hefur aukist með hverri sýningu,“ segir Elsa. „Fyrirtækin leggja mikinn metnað í hönnun, framsetningu og undirbúning. Þetta er ekki lengur stöðluð sýning með stöðluðum sýningarrýmum heldur heildstæð upplifun sem verður til inni í höllinni.“ „Stemningin við opnun hverrar sýningar er sérstök. Þegar salurinn opnast og afrakstur undirbúningsins blasir við finnur maður fyrir kraftinum og þeirri fagmennsku sem sýnendur leggja í framsetningu sína. Á fyrstu sýningunni árið 2006 var haft á orði að lítið þorp risi í höllinni í nokkra daga. Í dag myndi ég frekar segja að það rísi borg í Laugardalshöllinni.“ Mikilvægur fundarstaður Að hennar mati er það einmitt þessi sameiginlegi fundarstaður sem gefur sýningunni raunverulegt gildi. „Verk og vit er orðinn mikilvægur fundarstaður þar sem ákvarðanataka, fagfólk og fyrirtæki hittast á jafningjagrundvelli á hlutlausum stað. Þar hefst samtal sem heldur áfram löngu eftir að sýningu lýkur.“ Á tímum hraðra breytinga skiptir máli hvar slíkt samtal fer fram. Verk og vit er í því samhengi ekki aðeins viðburður heldur vettvangur sem styrkir tengsl, eykur sýnileika og stuðlar að áframhaldandi þróun mannvirkja- og byggingariðnaðarins.

Share this article