Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leiðtogar Evrópuríkja gagnrýna ákvörðun Bandaríkjanna um að létta hömlum af kaupum rússneskrar olíu

Read Full Article →

Leiðtogar Evrópuríkja hafa fordæmt þá ákvörðun Bandaríkjastjórnar að aflétta tímabundið banni við kaupum á rússneskri olíu . Yfirlýstur tilgangur er að tryggja hráolíubirgðir svo komast megi hjá því að olíuverð fari alveg úr böndum. Leiðtogarnir óttast, samkvæmt umfjöllun Politico , að Rússar geti aukið enn á atlögur að Úkraínu með því að fylla fjárhirslur af olíupeningum. Þýski kanslarinn Friedrich Merz segir ákvörðunina hafa komið á óvart og kveðst vilja vita nákvæmlega hvað liggi að baki ákvörðunar ríkisstjórnarinnar. Vandinn liggi frekar í verðákvörðunum en birgðaskorti, enda hafi verið ákveðið að losa um neyðarbirgðir olíu víða um heim sem ætti að hægja á verðhækkunum. Leiðtogar G7-ríkjanna höfðu á fundi í fyrradag lagt hart að Donald Trump Bandaríkjaforseta að slaka ekki á þvingunum gagnvart Rússum. Vilja ekki að Rússar noti ófriðinn í MIð-Austurlöndum til að veikja Úkraínu „Við viljum ekki að Rússar nýti sér stríðsátökin í Mið-Austurlöndum til að veikja Úkraínu. Þeim verður ekki heldur heimilað að auka þrýsting á NATO á austurlandamærunum,“ sagði Merz. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir Rússa munu nota olíugróðann til að framleiða vopn sem beitt verði gegn Úkraínu og ríkjum Mið-Austurlanda. Emmanuel Macron Frakklandsforseti tók undir það og sagði olíuverðshækkanir ekki eiga að verða til tilslökunar gegn Rússum. Merz áréttaði að Þjóðverjar og önnur G7 ríki ásamt Ísrael leituðu leiða til að ljúka stríðinu en kvaðst óttast að ríkisstjórnir Ísraels og Bandaríkjanna hefðu enga áætlun þess efnis.

Share this article