Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kjartan Kjartansson hlaut Blaðamannaverðlaun ársins

Read Full Article →

Verðlaunin eru veitt árlega á vegum Blaðamannafélags Íslands og eru veitt í fjórum flokkum: fyrir viðtal ársins, umfjöllun ársins, rannsóknarblaðamennsku ársins og blaðamannaverðlaun ársins. Tilnefningarnar voru tólf talsins, þrjár í hverjum flokki. Mikilvægt fyrir blaðamenn að sérhæfa sig í einhverju Kjartan Kjartansson, Sýn, hlaut Blaðamannaverðlaun ársins fyrir fréttaskýringar sínar um loftslagsmál á visir.is. Kjartan sagði við afhendinguna að mikilvægt væri, en jafnframt erfitt, fyrir íslenska blaðamenn að sérhæfa sig í ákveðnu umfjöllunarefni. „Þess vegna finnst mér svolítið mikilvægt að það séu að minnsta kosti tvö hérna sem eru búin að sérhæfa sig einhverju, sem eru kannski ekki endilega umfjöllunarefni sem eru mjög sexí eða fá marga smelli. Þannig mér finnst ánægjulegt að sjá að því sé veitt eftirtekt.“ Verðlaun fyrir umfjöllun ársins fengu Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, RÚV, fyrir umfjöllun sína um E. coli-matarsýkingu sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildinni, fékk verðlaun fyrir viðtal ársins en það tók hún við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Helgi Seljan og Árni Theodórsson, RÚV, fengu verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins fyrir umfjöllun í fréttaskýringarþættinum Kveik, um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Starfsmenn RÚV fengu fimm tilnefningar í ár. Fréttamenn Sýnar fengu þrjár tilnefningar og blaðamenn Morgunblaðsins og Heimildarinnar fengu tvær hvorir um sig. Austurglugginn fékk eina tilnefningu. Tilnefningarnar voru eftirfarandi: Viðtal ársins 2025 Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildin. Fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Jakob Bjarnar Grétarsson, Sýn. Fyrir viðtal á visir.is við Friðrik Ólafsson, stórmeistara í skák, í tilefni 90 ára afmælis hans. Sunna Sæmundsdóttir, Sýn. Fyrir viðtal í Kompás við Birgi Karl Óskarsson og Iðunni Eiríksdóttur, foreldra Bryndísar Klöru sem lést eftir stunguárás á menningarnótt árið 2024. Umfjöllun ársins 2025 Esther Jónsdóttir, Heimildin. Fyrir lifandi og afar fræðandi umfjöllun um ferð hennar með hópi vísindamanna á einn afskekktasta stað landsins, Esjufjöll í Vatnajökli. Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, RÚV. Fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun í Kveik um afleiðingar E.coli-matarsýkingar sem upp kom á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir, RÚV. Fyrir hlaðvarpsþáttaröðina Konungssinar í Kísildal sem fjallar um uppruna þeirra hugmyndafræðilegu sviptinga sem nú eiga sér stað í Bandaríkjunum. Rannsóknarblaðamennska ársins 2025 Freyr Gígja Gunnarsson og Helgi Seljan, RÚV. Fyrir umfjöllun í fréttaskýringarþættinum Speglinum á Rás 2 um umfangsmikil viðskipti embættis ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtæki sem vann fjölbreytileg verkefni fyrir embættið og fékk háar upphæðir greiddar. Gunnar Gunnarsson og Viðar Guðjónsson, Morgunblaðið og Austurglugginn. Fyrir umfjöllun um stöðu geðheilbrigðismála sem unnin var í samstarfi tveggja miðla og birtist á báðum. Helgi Seljan og Árni Þór Theódórsson, RÚV. Fyrir umfjöllun í Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Blaðamannaverðlaun ársins 2025 Kjartan Kjartansson, Sýn. Fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Flókin umfjöllunarefni skýrð á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Morgunblaðið. Fyrir ítarlega umfjöllun um neyðarástand í málefnum barna í viðkvæmri stöðu. Þóra Tómasdóttir, RÚV. Fyrir fréttaskýringar í þættinum Þetta helst. Vinningshafar og umsagnir dómnefndar: Blaðamannaverðlaun ársins 2025 Kjartan Kjartansson, Sýn. Fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Flókin umfjöllunarefni skýrð á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Kjartan hefur sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiði Íslands í samstarfi við Evrópusambandið sem varð til þess að íslensk stjórnvöld þurftu að endurskoða markmið sín vegna Parísarsamningsins. Viðtal ársins 2025 Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildin. Fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ingibjörg Dögg fylgir Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gefur það lesandanum nýja og áhugaverða sýn á forsetann Höllu og konuna á bak við embættið. Halla greinir frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar. Í viðtalinu felast mikilvæg skilaboð frá Höllu til þolenda um að kynferðisofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð. Umfjöllun ársins 2025 Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, RÚV. Fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun í Kveik um afleiðingar alvarlegrar e.coli-matarsýkingar sem upp kom í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Kristín fylgir málinu eftir af festu, varpar nýju ljósi á bæði ástæður og afleiðingar smitsins, talar við fjölda fólks, spyr óvæginna spurninga og sýnir áður óbirt myndbönd og ljósmyndir. Umfjöllunin er skýr, vel fram sett og nýtir kosti myndmiðilsins vel. Rannsóknarblaðamennska ársins 2025 Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson, RÚV. Fyrir umfjöllun í Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrrverandi og þáverandi lögreglumönnum. Umfjöllunin leiddi til athugunar eftirlitsnefndar um störf lögreglu, persónuverndar, dómsmálaráðherra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á verklagi lögreglu.

Share this article