Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sólrún og Viðar tilnefnd til blaðamannaverðlauna

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.3.2026 | 13:30 Sólrún og Viðar tilnefnd til blaðamannaverðlauna Sólrún Lilja Ragnarsdóttir og Viðar Guðjónsson. Samsett mynd Setja bókamerki Tveir blaðamenn mbl.is og Morgunblaðsins eru tilnefndir til blaðamannaverðlauna ársins 2025. Það eru þau Sólrún Lilja Ragnarsdóttir og Viðar Guðjónsson. Sólrún er tilnefnd í flokknum blaðamannaverðlaun ársins fyrir ítarlega umfjöllun á mbl.is um neyðarástand í málefnum barna í viðkvæmri stöðu . „Sólrún Lilja hefur sýnt einstaka þrautseigju við að vekja athygli á þessum vanda með ítrekuðum afhjúpunum, viðamikilli umfjöllun og eftirfylgni með málum. Hún hefur krafið stjórnvöld svara og þannig stuðlað að löngu tímabærum breytingum í þessum viðkvæma málaflokki,“ segir í tilkynningu Blaðamannafélags Íslands . Viðar Guðjónsson er tilnefndur fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins fyrir umfjöllun um stöðu geðheilbrigðismála sem unnin var í samstarfi Morgunblaðsins og Austurgluggans og birtist á báðum miðlum. „Upplýst var að maður sem banaði hjónum í Neskaupstað árið 2024 átti að vera í gæslu. Umfjöllunin beindi kastljósinu að stöðu geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og leiddi til þess að yfirvöld ákváðu að fjölga úrræðum fyrir einstaklinga sem hvorki áttu heima í fangelsi né á hefðbundinni geðmeðferðarstofnun.“ Verðlaunin veitt 13. mars Verðlaun eru veitt í fjórum flokkum: blaðamannaverðlaun ársins, umfjöllun ársins, viðtal ársins og rannsóknarblaðamennska ársins. Þrennt er tilnefnt í hverjum flokki. Tilnefndu eru: Viðtal ársins: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (Heimildin), Jakob Bjarnar Grétarsson (Sýn) og Sunna Sæmundsdóttir (Sýn). Umfjöllun ársins: Esther Jónsdóttir (Heimildin), Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson (RÚV) og Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir (RÚV). Rannsóknarblaðamennska ársins: Freyr Gígja Gunnarsson og Helgi Seljan (RÚV), Gunnar Gunnarsson og Viðar Guðjónsson (Austurglugginn og Morgunblaðið) og Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson (RÚV). Blaðamannaverðlaun ársins: Kjartan Kjartansson (Sýn), Sólrún Lilja Ragnarsdóttir (Morgunblaðið) og Þóra Tómasdóttir (RÚV). Rökstuðning dómnefndar er að finna á vef Blaðamannafélagsins, www.press.is. Verðlaunin verða afhent í Hafnarhúsi, föstudaginn 13. mars klukkan 18. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tekur við Tindastóli Eftirmaður Mohamed Salah fundinn? Afþakkaði háar fjárhæðir fyrir rödd sína Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílslys við Bifröst Metár í erlendri netverslun Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Máttu fara í húsleit hjá Lyf og heilsu Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Beint: Meiriháttar neyðarástandi lýst yfir Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Mest lesið Í gær Í vikunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason Tölvupósturinn var ekki mistök Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Íslenska mest töff tungumál í heimi „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Ríkisstjórnin kynnir ESB-tillöguna Snjókoma og hvassviðri í kortunum „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Tekur við Tindastóli Eftirmaður Mohamed Salah fundinn? Afþakkaði háar fjárhæðir fyrir rödd sína Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílslys við Bifröst Metár í erlendri netverslun Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Boða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst Kynnir þingsályktunartillögu um ESB-málið á morgun Sonur Khamenei „óásættanlegur“ „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason Tölvupósturinn var ekki mistök Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Íslenska mest töff tungumál í heimi „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Ríkisstjórnin kynnir ESB-tillöguna Snjókoma og hvassviðri í kortunum „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga

Share this article