Blaðamannafélag Íslands hefur opinberað tilnefningar til Blaðamannaverðlauna ársins 2025. Veitt eru verðlaun í fjórum flokkum, en alls eru tilnefningarnar tólf talsins. Starfsmenn RÚV fengu fimm tilnefningar í ár. Fréttamenn Sýnar fengu þrjár tilnefningar og blaðamenn Heimildarinnar og Morgunblaðsins tvær hvor um sig. Austurglugginn fékk eina tilnefningu. Tilnefningarnar eru fyrir efni af ólíkum toga. Þar eru til að mynda umfjallanir um málefni barna í viðkvæmri stöðu, loftslags- og umhverfismál, pólitískar sviptingar í Bandaríkjunum og meðferð á opinberu fé hjá stórri ríkisstofnun. Umfjallanir í brennidepli á síðasta ári Í flokki rannsóknarblaðamennsku lúta tilnefningar meðal annars að umfjöllun um umfangsmikil viðskipti embættis ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtæki og sameiginlegri umfjöllun tveggja fjölmiðla um stöðu geðheilbrigðismála á landsbyggðinni. Þrjú eru tilnefnd sem blaðamaður ársins. Kjartan Kjartansson hlýtur tilnefningu fyrir vandaðar fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir er tilnefnd fyrir ítarlega umfjöllun um í Morgunblaðinu og á mbl.is um neyðarástand í málefnum barna í viðkvæmri stöðu. Þá er Þóra Tómasdóttir, fréttamaður á RÚV, tilnefnd fyrir ríkulega frásagnargáfu og framsetningu fréttaskýringa í þættinum Þetta helst.