Innlent | mbl | 13.3.2026 | 19:37 Þessi hlutu blaðamannaverðlaunin Allir þeir sem tilnefndir voru. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélag Íslands fyrir árið 2025 voru afhent í Listasafni Reykjavíkur í kvöld. Verðlaun voru veitt í fjórum flokkum og eru verðlaunahafarnir eftirfarandi. Viðtal ársins 2025 Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildinni. Fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ingibjörg Dögg fylgir Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gefur það lesandanum nýja og áhugaverða sýn á forsetann Höllu og konuna á bak við embættið. Halla greinir frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar. Í viðtalinu felast mikilvæg skilaboð frá Höllu til þolenda um að kynferðisofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð. Umfjöllun ársins 2025 Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, RÚV. Fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun í Kveik um afleiðingar alvarlegrar e.coli matarsýkingar sem upp kom í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Kristín fylgir málinu eftir af festu, varpar nýju ljósi á bæði ástæður og afleiðingar smitsins, talar við fjölda fólks, spyr óvæginna spurninga og sýnir áður óbirt myndbönd og ljósmyndir. Umfjöllunin er skýr, vel fram sett og nýtir kosti myndmiðilsins vel. Rannsóknarblaðamennska ársins 2025 Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson, RÚV. Fyrir umfjöllun í Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrrverandi og þáverandi lögreglumönnum. Umfjöllunin leiddi til athugunar eftirlitsnefndar um störf lögreglu, persónuverndar, dómsmálaráðherra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á verklagi lögreglu. Blaðamannaverðlaun ársins 2025 Kjartan Kjartansson, Sýn. Fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Flókin umfjöllunarefni skýrð á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Kjartan hefur sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiði Íslands í samstarfi við Evrópusambandið sem varð til þess að íslensk stjórnvöld þurftu að endurskoða markmið sín vegna Parísarsamningsins. Handahafar blaðamannaverðlaunanna 2025. mbl.is/Eggert Jóhannesson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aðalmálið að vinna nágrannaslagina Þessi hlutu blaðamannaverðlaunin Afturelding í úrslitaleikinn Vandamálin stærri en hver þjálfar liðið Mæðginin öll í gæsluvarðhald Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lentu í vandræðum uppi á jökli Vöruflutningabílar illa búnir á þjóðveginum Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Mest lesið Í gær Í vikunni Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Hjálmar H. Ragnarsson látinn Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Quang Le fær ekki að opna bankareikning Flytur mál fyrir Hæstarétti Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Aðalmálið að vinna nágrannaslagina Þessi hlutu blaðamannaverðlaunin Afturelding í úrslitaleikinn Vandamálin stærri en hver þjálfar liðið Mæðginin öll í gæsluvarðhald Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Quang Le fær ekki að opna bankareikning Mest lesið Í gær Í vikunni Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Hjálmar H. Ragnarsson látinn Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Quang Le fær ekki að opna bankareikning Flytur mál fyrir Hæstarétti Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Loka