Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Áhuginn margfaldast og endurbætur fyrirhugaðar á Evrópuvefnum

Read Full Article →

Heimsóknir notenda á Evrópuvefinn, upplýsingaveitu Háskóla Íslands um Evrópusambandið og Evrópumál, hafa margfaldast að undanförnu. Vefurinn hefur verið óvirkur um nokkurt skeið en til stendur að uppfæra og endurbæta hann í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið í lok ágúst. Að sögn Jóns Gunnars Þorsteinssonar, ritstjóra Vísindavefs Háskóla Íslands, var ákveðið að sækja um styrk til þess að endurbæta vefinn þegar ljóst varð að farið yrði í umræðu um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. „Í árslok 2025 fékk vefurinn fimm milljóna króna styrk frá stjórnvöldum til þess að endurbæta hann og nútímavæða því hann starfaði auðvitað á árunum 2011-2013. Það var til dæmis ekki hægt að nota hann í farsímum lengur, hann var ekki skalanlegur.“ Flettingum fjölgað um 700% Ríkisstjórnin kynnti á föstudag að fyrirhugað væri að kjósa um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið 29. ágúst. Á undanförnum vikum hefur fjöldi heimsókna notenda á Evrópuvefinn margfaldast. Jón telur það renna stoðum undir aukinn áhuga landsmanna á þessum málum og þörfina fyrir upplýsingaveitu sniðna að Evrópusambandinu og Evrópumálum. „Við erum með tölur frá 2016 og yfirleitt hefur þetta bara verið kannski frá 500 upp í 1500 á mánuði. En skyndilega í febrúar þá voru allt í einu komnar 11.500 síðuflettingar sem er 700% aukning. Ef ég miða við svona sirka 1.000 til 1.500 þá er þetta svakaleg aukning.“ Þróa mállíkan fyrir vefinn Jón segir að lokað sé fyrir fyrirspurnir á Evrópuvefnum í augnablikinu og því sé ekki hægt að senda inn spurningar núna. Þá sé komin ný tækni og hyggjast þau sem standa að Evrópuvefnum nýta hana til þess að uppfæra hann. Til að mynda standi til að þróa mállíkan sem leiti í efninu sem fyrir sé á vefnum og geti myndað svör við spurningum. Notendur geti því sent inn spurningar til mállíkansins sem veiti skjót svör við alls konar efni sem tengist Evrópuumræðunni. „Það sem er kannski aðalmálið núna er að prófa mállíkanið vel og athuga hvers konar svör koma út úr því. Svo er kannski hægt að skoða hvers er verið að spyrja og þá verður hægt að fá svör frá fræðafólki um sama efni og við það verður mállíkanið betra. Þetta er svona kannski markmiðið.“ Áhersla á málefnalega upplýsingagjöf Jón bindur vonir við að Evrópuvefurinn og mállíkanið verði komin aftur í gagnið í sumar eða í haust. Hann segir mikilvægast að geta fengið traust svör frá fræðafólki sem hægt sé að nota til þess að bæta mállíkanið. „Mér finnst líklegt að ef þetta gangi vel verði einhver áframhaldandi starfsemi á vefnum og við myndum náttúrlega þurfa að fá einhvern styrk frá stjórnvöldum til að halda úti starfsemi.“ Jón segir hugsunina að baki Evrópuvefnum vera að hver sem er geti notað vefinn til þess að mynda sína eigin skoðun. Fari vefurinn á flug að nýju verði lagt kapp á að efni vefsins verði bæði málefnalegt og vel rökstutt. Þá yrði meðal annars stofnað til ritnefndar fyrir vefinn og sérstöku verklagi fylgt þegar athugasemdir bærust.

Share this article