Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Listaháskóli kominn að þolmörkum en flytur ekki í Tækniskólann

  • What: School relocation plans update
  • Impact: Institutional space planning
Read Full Article →

Listaháskóli Íslands flytur hvorki í húsnæði Tækniskólans né í Tollhúsið. Rektor segir mjög aðkallandi að finna varanlega lausn á húsnæðisvanda skólans. „Við höfum verið að vinna með háskólaráðuneytinu að ákveðinni tillögu sem verður tilkynnt fljótlega,“ segir Kristín Eysteinsdóttir, rektor LHÍ. Í maí 2022 var undirrituð viljayfirlýsing um að deildir listaháskólans, sem nú eru starfræktar á fjórum stöðum, myndu sameinast undir einu þaki í Tollhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík. Rúmum tveimur árum síðar var tilkynnt að spara mætti milljarða með því að flytja starfsemina frekar í húsnæði Tækniskólans á Skólavörðuholti. Nú hafa forsendur breyst því tafir eru á byggingu nýs húsnæðis Tækniskólans í Hafnarfirði. Tafir á byggingu nýs Tækniskóla Í svari menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu segir að forsendur þeirra áætlana hafi breyst vegna fyrirsjáanlegra tafa á uppbyggingu nýs Tækniskóla í Hafnarfirði, og vegna takmarkaðra stækkunarmöguleika á Skólavörðuholti. Unnið sé að viljayfirlýsingu um nýtt húsnæði fyrir skólann. Kristín segist fagna því að ráðherra hafi haft frumkvæði að því að skaffa skólanum nýtt húsnæði sem fyrst. Staðsetningin sem nú er í skoðun sé hið minnsta sú sjöunda í röðinni. „Ég held að starfsfólk skólans hafi skálað í sjö anddyrum. Þetta er 28 ára saga, við erum svona svolítið á sama stað og við vorum þegar skólinn var stofnaður. Við erum algjörlega komin að þolmörkum. Það þarf að leysa þessi mál og okkar nemendur þurfa aðstöðu sem er sambærileg við aðstöðu annarra háskóla á Íslandi.“

Share this article